Bæjarráð
Fundargerð
413. fundur bæjarráðs Grundarfjarðar,
haldinn fimmtudaginn 24. maí 2012, kl. 13:00, á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar
Mætt voru: Eyþór Garðarsson (EG), varaformaður, Sigurborg Kr. Hannesdóttir (SKH) og Þórður Á. Magnússon (ÞÁM).
Að auki sátu fundinn Björn Steinar Pálmason (BSP), bæjarstjóri og Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS), skrifstofustjóri, sem ritaði fundargerð.
Varaformaður stýrði fundi í fjarveru formanns.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til samþykktar:
1.1 132. fundur umhverfisnefndar, 16.05.2012. Fundargerð í sex liðum.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til kynningar:
2.1 121. fundur félagsmálanefndar Snæfellinga, 08.05.2012. Fundargerð í fjórum liðum.
2.2 25. fundur Framkvæmdaráðs Snæfellsness, 21.05.2012. Fundargerð í níu liðum.
2.3 88. fundur stjórnar SSV, 11.05.2012. Fundargerð í átta liðum.
2.4 „Velferð unglinga á Snæfellsnesi“. Fundur í FSN 22.05.2012.
2.5 64. fundur Menningarráðs Vesturlands, 24.02.2012. Fundargerð í níu liðum.
2.6 65. fundur Menningarráðs Vesturlands, 25.04.2012. Fundargerð í 11 liðum.
2.7 66. fundur Menningarráðs Vesturlands, 28.03.2012. Fundargerð í fimm liðum.
2.8 6. aðalfundur Menningarráðs Vesturlands, 25.04.2012. Fundargerð í átta liðum.
3. Fjármál.
3.1 Rekstraryfirlit.
3.2 Lausafjárstaða.
3.3 Yfirlit yfir innborgað útsvar.
3.4 Tilkynning um endanlegt framlag vegna nýbúafræðslu.
3.5 Leiðrétting á innheimtu Jöfnunarsjóðs.
4. Viðauki við fjárhagsáætlun 2012.
Viðauki við fjárhagsáætlun 2012 lagður fram.
Samþykkt samhljóða að vísa viðauka við fjárhagsáætlun 2012 til bæjarstjórnar.
5. Gjaldskrá tjaldsvæðis 2012.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá tjaldsvæðis 2012. Bæjarstjóra falið að bera gjaldskrána saman við sambærileg tjaldsvæði.
Samþykkt samhljóða.
6. Fundarboð, námskeið, boð um þjónustu og umsóknir um styrki:
6.1 Dagur ferðaþjónustu á Vesturlandi, 31.05.2012.
6.2 Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 27.-28.09.2012.
7. Annað efni til kynningar:
7.1 Staðfestingarbréf endurskoðunar.
7.2 Málefni hitaveitu.
7.3 Niðurstaða útboðs vegna almenningssamgangna á Vesturlandi.
7.4 Drög að tillögum um IPA-verkefnum SSV.
Bæjarstjóra falið að kalla eftir rökstuðningi á því hvers vegna verkefnið Svæðisgarður á Snæfellsnesi sé ekki eitt af tillögum um IPA verkefni.
7.5 Lokun sorphauga á Hrafnkelsstöðum.
7.6 Húsnæðismál.
7.7 Refaveiði.
7.8 Ársreikningur Menningarráðs Vesturlands 2011.
7.9 Styrktarsjóður EBÍ 2012.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl. 14:50.
Eyþór Garðarsson
Sigurborg Kr. Hannesdóttir
Þórður Á. Magnússson
Björn Steinar Pálmason
Sigurlaug R. Sævarsdóttir
|