Menningar– og tómstundanefnd Grundarfjarðarbæjar
Fundargerð
67. fundur menningar– og tómstundanefndar Grundarfjarðar,
haldinn miðvikudaginn 30. maí 2012, kl. 16:30, á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar.
Mættar: Þorbjörg Guðmundsdóttir (ÞG), formaður, Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir (HDH), Þórdís Anna Guðmundsdóttir (ÞAG) og Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS), skrifstofustjóri, sem ritaði fundargerð.
Formaður bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár.
1. Hátíðahöldin 17. júní
Farið yfir hugmyndir að dagskrá þjóðhátíðardagsins.
2. Sumarnámskeið
Dagskrá sumarnámskeiða fyrir börn fædd 2001-2006 hefur verið kynnt á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar. Nefndin lýsir ánægju sinni með dagskrána.
3. Umsókn um styrk
Tekið fyrir erindi Ásdísar Lilju Pétursdóttur og Ingu Magnýjar Jónsdóttur um styrk vegna sundnámskeiðs. Menningar- og tómstundanefnd beinir erindinu til bæjarstjóra. Nefndin lýsir ánægju sinni með gott framtak þeirra.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl. 17:50.
Þorbjörg Guðmundsdóttir
Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir
Þórdís Anna Guðmundsdóttir
Sigurlaug R. Sævarsdóttir
|