Skólanefnd Grundarfjarðar
Fundargerð
105. fundur skólanefndar Grundarfjarðar,
haldinn á bæjarskrifstofunni, miðvikudaginn 6. júní 2012, kl. 16:15.
Mætt voru: Ásthildur E. Erlingsdóttir, formaður, Guðrún Jóna Jósepsdóttir, Hólmfríður Hildimundardóttir, Sigríður G. Arnardóttir og Una Ýr Jörundsdóttir.
Þá sat fundinn Björn Steinar Pálmason, bæjarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Vegna málefna grunnskólans sat fundinn Anna Bergsdóttir, skólastjóri. Fulltrúi kennara og foreldra voru boðaðir en komu ekki.
Vegna málefna leikskólans sátu eftirtaldir fundinn:
Matthildur S. Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, Ingibjörg E. Þórarinsdóttir, fulltrúi kennara og Guðrún Hrönn Hjartardóttir, fulltrúi foreldra.
Skólastjóri tónlistarskólans var boðaður á fundinn en kom ekki.
Gengið var til dagskrár:
1. Málefni Grunnskóla Grundarfjarðar:
1.1. Skóladagatal 2012-2013.
Skóladagatal næsta skólaárs var lagt fram og samþykkt með áorðnum breytingum frá síðasta fundi. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort skólaslit verði 31. maí eða 3. júní 2013. Skólastjóra veit heimild til fullnaðarfrágangs á skóladagatali.
1.2. Viðhaldsframkvæmdir í skólanum í sumar.
Anna kynnti þær viðhaldsframkvæmdir sem verða í skólanum í sumar.
1.3. Rekstrarkostnaður skóla 2010.
Lagður fram samanburður á rekstrarkostnaði grunnskóla árið 2010. Grunnskóli Grundarfjarðar kemur vel út úr samanburði og er kostnaður á hvern nemanda undir meðaltalskostnaði skóla af sambærilegri stærð.
1.4. Fundargerð skólaráðs, 23.02.2012.
Lagt fram til kynningar.
1.5. Fundargerð skólaráðs, 02.05.2012.
Lagt fram til kynningar.
Anna Bergsdóttir yfirgaf fundinn kl. 16:45.
Fulltrúar frá leikskólanum komu á fundinn kl. 16:45.
2. Málefni Leikskólans Sólvalla:
2.1. Skóladagatal 2012-2013.
Skóladagatal næsta skólaárs var lagt fram til vinnslu.
2.2. Aðalnámsskrá leikskóla.
Aðalnámsskrá leikskóla 2012 var lögð fram til kynningar.
Fulltrúar frá leikskólanum yfirgáfu fundinn kl. 17:40.
3. Málefni Tónlistarskóla Grundarfjarðar:
3.1. Forskóli veturinn 2012-2013.
Samþykkt að beina því til bæjarstjórnar að á komandi skólaári verði boðið upp á forskóla í tónlistarskólanum. Námið er fyrir nemendur í 1. og 2. bekk grunnskólans, það er valkvætt og er fyrri utan hefðbundinn kennslutíma grunnskólans. Nemendur verði þrír saman í tíma, einu sinni í viku, 60 mín. í senn.
Samþykkt samhljóða.
4. Skólastefna Grundarfjarðar.
Lögð fram tillaga um beina því til bæjarstjórnar að Gunnar Kristjánsson verði ráðinn til að stýra vinnu við gerð skólastefnu Grundarfjarðar.
Skólanefnd og Gunnar móti sameiginlega verkáætlun fyrir mótun skólastefnu og gerð verði kostnaðaráætlun byggð á henni.
Samþykkt samhljóða.
5. Til kynningar:
5.1. 69. fundur skólamálanefndar Sambands ísl. sveitarfélaga, 16.01.2012.
5.2. 70. fundur skólamálanefndar Sambands ísl. sveitarfélaga, 13.03.2012.
5.3. 71. fundur skólamálanefndar Sambands ísl. sveitarfélaga, 08.05.2012.
5.4. Mennta- og menningarmálaráðuneytið: Úttekt á stærðfræðikennslu á unglingastigi grunnskóla.
5.5. Mennta- og menningarmálaráðuneytið: Ráðstefna um grunnþætti og nýja menntastefnu, 31.08.2012.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:10. |