Bæjarstjórn
Fundargerð
150. fundur bæjarstjórnar Grundarfjarðar,
haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar, fimmtudaginn 14. júní 2012, kl. 16:30.
Mætt: Þórður Á. Magnússon (ÞÁM), Ásthildur E. Erlingsdóttir (ÁEE), Eyþór Garðarsson (EG), Gísli Ólafsson (GÓ), Rósa Guðmundsdóttir (RG), Runólfur Guðmundsson (RunG) og Una Ýr Jörundsdóttir (UÝJ).
Að auki sátu fundinn Björn Steinar Pálmason (BSP), bæjarstjóri og Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS), skrifstofustjóri, sem ritaði fundargerð.
Varaforseti bæjarstjórnar stýrði fundi í fjarveru forseta.
Bæjarstjórn bauð nýjan Grundfirðing velkominn í heiminn. Heiða María Árnadóttir fæddist þann 7. maí. Foreldrar hennar eru Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir og Árni Þórarinsson.
Fundarmenn fögnuðu með lófataki.
Forseti óskaði eftir afbrigði frá útsendri dagskrá þannig að eftirfarandi liðum verði bætti við:
16.8. Innanríkisráðuneytið 12.06.2012: Drög að reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga,
16.9. Fasteignamat 2013.
Samþykkt samhljóða.
Gengið var til dagskrár:
1. Kosningar:
1.1 Kjör forseta og varaforseta bæjarstjórnar til tveggja ára.
Lögð fram tillaga um að Sigurborg Kr. Hannesdóttir verði forseti bæjarstjórnar og Þórður Á. Magnússon varaforseti bæjarstjórnar til tveggja ára.
Samþykkt samhljóða.
1.2 Kjör fulltrúa í bæjarráð til eins árs.
Lögð fram tillaga um að Eyþór Garðarsson og Sigurborg Kr. Hannesdóttir frá L-lista og Þórður Á. Magnússon frá D-lista verði fulltrúar í bæjarráði Grundarfjarðar til eins árs.
Samþykkt samhljóða.
1.3 Kjör formanns og varaformanns bæjarráðs.
Lögð fram tillaga um að Eyþór Garðarsson verði formaður bæjarráðs og Sigurborg Kr. Hannesdóttir varaformaður bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.
2. Fundargerðir bæjarráðs:
2.1 413. fundur, 24.05.2012. Fundargerð í sjö liðum.
Liður 5. Gjaldskrá tjaldsvæðis 2012.
Bæjarstjóri lagði fram svohljóðandi tillögu:
„Gjald fyrir rafmagn verði 600 kr. í stað 800 kr. Gjaldskráin verði staðfest að öðru leyti.“
Til máls tóku: BSP og ÞÁM.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2.2 414. fundur, 25.05.2012. Fundargerð í einum lið.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
3. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til samþykktar:
3.1 67. fundur menningar- og tómstundanefndar, 30.05.2012. Fundargerð í þremur liðum.
Til máls tóku: BSP og ÞÁM.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
3.2 105. fundur skólanefndar, 06.06.2012. Fundargerð í fimm liðum.
Liður 3. Málefni Tónlistarskóla Grundarfjarðar, forskóli veturinn 2012-2013.
Til máls tóku: BSP og ÞÁM.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að boðið verði upp á forskóla í tónlistarskólanum fyrir nemendur í 1. og 2. bekk grunnskólans í samræmi við bókun nefndarinnar.
Liður 4. Skólastefna Grundarfjarðar.
Til máls tóku: RG, BSP, ÁEE og ÞÁM.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að Gunnar Kristjánsson verði ráðinn til að stýra vinnu við gerð skólastefnu Grundarfjarðar.
Fundargerðin í heild samþykkt samhljóða.
4. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til kynningar:
4.1 Aðalfundur Snæfrosts hf., 23.05.2012.
4.1.1 Ársreikningur Snæfrosts árið 2011.
4.2 2. fundur svæðisskipulagsnefndar og stýrihóps svæðisgarðs, 04.06.2012.
4.2.1 Drög að lýsingu svæðisskipulagsverkefnis.
4.2.2 Umsókn til Skipulagssjóðs.
4.2.3 Yfirlit yfir stöðu og næstu skref.
4.3 122. fundur félagsmálanefndar Snæfellinga, 05.06.2012.
4.4 61. fundur stjórnar Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, 07.06.2012.
4.5 Aðalfundur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, 07.06.2012.
4.6 Velferð unglinga á Snæfellsnesi. Niðurstaða fundar 22.05.2012.
4.7 70. fundur stjórnar Sorpurðunar Vesturlands, 29.03.2012.
Til máls tóku: BSP og ÞÁM.
4.8 71. fundur stjórnar Sorpurðunar Vesturlands, 06.06.2012.
4.9 Fundur vinnuhóps um almenningssamgöngur á Vesturlandi, 14.03.2012.
4.10 Fundur vinnuhóps um almenningssamgöngur á Vesturlandi, 23.05.2012.
4.11 Fundargerð aðalfundar Sjávarrannsóknarsetursins Varar, 12.05.2012.
4.11.1 Bréf stjórnarformanns Varar.
4.12 797. fundur stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 25.05.2012.
5. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2012.
Bæjarstjóri lagði fram og kynnti viðauka við fjárhagsáætlun 2012 ásamt viðhalds- og framkvæmdaáætlun.
Allir tóku til máls.
Samþykkt samhljóða.
6. Skammtímalán hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Til máls tóku: BSP og ÞÁM.
Eftirfarandi tillaga er lögð fram:
„Bæjarstjórn Grundarfjarðar veitir bæjarstjóra, Birni Steinari Pálmasyni, kt. 010367-4689, og skrifstofustjóra, Sigurlaugu R. Sævarsdóttur, kt. 071062-4229, hvoru um sig, hér með heimild til skammtímalánatöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð allt að 25 milljónir króna. Heimildin gildir út árið 2012.“
Samþykkt samhljóða.
7. Hækkun grunnfjárhæðar vegna fjárhagsaðstoðar.
Lagt fram bréf frá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga með tillögu að hækkun grunnfjárhæðar vegna fjárhagsaðstoðar úr kr. 125.540 í kr. 128.628.
Tillagan samþykkt samhljóða.
8. Systkinaafsláttur á leikjanámskeiðum sumarsins.
Leikjanámskeið sumarsins eru fyrir börn fædd 2001-2006. Lagt er til að afsláttur sé veittur vegna systkina á sama námskeiði þannig að 20% afsláttur sé veittur vegna annars barns og frítt fyrir það þriðja.
Samþykkt samhljóða.
9. Íbúaþing.
Lagt er til að haldið verði íbúaþing 6. október. Tekinn verði upp þráðurinn við undirbúning þar sem frá var horfið vegna íbúaþings sem til stóð að halda í vor og stýrihópur starfi áfram.
Til máls tóku: GÓ og ÞÁM.
Samþykkt með sex atkvæðum, einn sat hjá (RG).
10. Lifandi miðbær.
L-listinn leggur til að ýtt verði úr vör verkefni undir heitinu „Lifandi miðbær.“ Þar sem ekki er eftirspurn eftir miðbæjarlóðum í Grundarfirði um þessar mundir er lagt til að miðbæjarsvæði verði nýtt til að auka líf í miðbænum og gera hann meira aðlaðandi.
Til máls tóku: GÓ, ÞÁM, ÁEE og RunG.
Samþykkt samhljóða.
11. Starf forstöðumanns íþróttamannvirkja.
Lagt er til að bæjarstjóra verði veitt heimild til að auglýsa starf forstöðumanns íþróttamannvirkja laust til umsóknar. Ráðið verði í starfið frá 1. ágúst 2012.
Til máls tóku: BSP og ÞÁM.
Samþykkt samhljóða.
12. Endurskoðun innkaupareglna.
Lögð fram tillaga að breytingum á gildandi innkaupareglum Grundarfjarðarbæjar.
Til máls tóku: BSP og ÞÁM.
Nýjar innkaupareglur Grundarfjarðar samþykktar samhljóða.
13. Erindi frá Þorgrími Kolbeinssyni og Inga Hans Jónssyni um afnot af landi.
Lagt fram erindi um afnot af landi vestast í Hellnafellstúni. Landið afmarkast af þjóðvegi í suðri, Innri Búará í vestri og af túngirðingu í austri.
Til máls tóku: EG, ÞÁM, RunG, BSP og GÓ.
Bæjarstjórn tekur jákvætt í erindið og vísar því til umhverfisnefndar til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
14. Ný umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Hægt og hljótt ehf. (Kaffi 59).
Lögð fram endurnýjuð umsókn um rekstrarleyfi fyrir Hægt og hljótt ehf. Auk endurnýjunar á rekstrarleyfi, sem áður var samþykkt, er sótt um leyfi til útiveitinga á palli við húsið til kl. 23:00.
Til máls tóku: EG og ÞÁM.
Samþykkt samhljóða að gera ekki athugasemdir við umsókn um endurnýjun rekstrarleyfis né umsókn til útiveitinga til kl. 23:00.
15. Fundarboð, námskeið, boð um þjónustu og umsóknir um styrki:
15.1 Aðalfundir sjálfseignarstofnunar um Eyrbyggju – Sögumiðstöð og Blöðruskalla, sögufélags, 18.06.2012.
15.2 Fundur Arion banka um efnahagshorfur, 15.06.2012.
15.3 Fundur Hafrannsóknarstofnunarinnar um ástand fiskistofna og aflahorfur, 18.06.2012.
15.4 „Eyðibýli á Íslandi“; beiðni um styrk.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að hafna beiðni um styrk að þessu sinni.
16. Annað efni til kynningar:
16.1 Bréf Grundarfjarðarbæjar til HEV vegna fráveitumála.
Til máls tóku: EG og ÞÁM.
16.2 Erindi frá umhverfisráðherra varðandi dag íslenskrar náttúru 16.09.2012.
16.3 Umsókn Hátíðarfélags Grundarfjarðar um dansleik í tjaldi á hafnarsvæði ásamt umsögn hafnarstjóra og bæjarstjóra.
16.4 Umsókn Blöðruskalla (Sögumiðstöð) um veitingaleyfi ásamt umsögn.
16.5 Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir ferðaþjónustu á Setbergi ásamt umsögn.
16.6 Bréf til sveitarstjórna frá SAMAN-hópnum.
16.7 Þjóðmálanefnd þjóðkirkjunnar: Velferð barna.
16.8 Innanríkisráðuneytið 12.06.2012: Drög að reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
16.9 Fasteignamat 2013.
16.10 Drög að viðbótarsamningi vegna ársins 2012 við samstarfssamning Grundarfjarðarbæjar og Eyrbyggju, sögumiðstöðvar.
17. Umboð til bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Lögð fram svohljóðandi tillaga varaforseta bæjarstjórnar:
„Bæjarstjórn samþykkir að fella niður bæjarstjórnarfundi í júlí og ágúst nk. skv. heimild 7. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Grundarfjarðarbæjar.
Í sumarleyfi bæjarstjórnar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella skv. heimild í 48. gr. samþykktarinnar.“
Samþykkt samhljóða.
18. Minnispunktar bæjarstjóra.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 18:45.
Þórður Á. Magnússon
Ásthildur E. Erlingsdóttir
Eyþór Garðarsson
Gísli Ólafsson
Rósa Guðmundsdóttir
Runólfur Guðmundsson
Una Ýr Jörundsdóttir
Björn Steinar Pálmason
Sigurlaug R. Sævarsdóttir
|