Bæjarráð
Fundargerð
415. fundur bæjarráðs Grundarfjarðar,
haldinn miðvikudaginn 20. júní 2012, kl. 10:00, á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar
Mætt voru: Eyþór Garðarsson (EG), formaður, Sigurborg Kr. Hannesdóttir (SKH) og Þórður Á. Magnússon (ÞÁM).
Að auki sat fundinn Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS), skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.
Gengið var til dagskrár.
1. Framlagning kjörskrár vegna forsetakosninga.
Lagður fram kjörskrárstofn sem miðast við 9. júní 2012 vegna forsetakosninga 30. júní 2012.
Á kjörskrá eru alls 622, 328 karlar og 294 konur.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framlagða kjörskrá.
Skrifstofustjóra falið að undirrita og ganga frá kjörskrá til framlagningar.
Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl. 10:10.
Eyþór Garðarsson
Sigurborg Kr. Hannesdóttir
Þórður Á. Magnússon
Sigurlaug R. Sævarsdóttir
|