Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Fimmtudagur 12. desember 00:49
  Forsíða   Þjónusta   Mannlíf   Stjórnsýsla   Ferðamenn - Tourists 
   
 
Á döfinni
SMÞMFFL
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930311234
567891011

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fundargerðir
3.desember 2019
540. fundur bæjarráðs
28.nóvember 2019
232. fundur bæjarstjórnar
27.nóvember 2019
207. fundur skipulags- og umhverfisnefndar
19.nóvember 2019
7. fundur hafnarstjórnar
Fréttir - Nýlegt safn
Fundargerðir  Prenta síðu

Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Íþrótta-og æskulýðsnefnd, fundur nr. 93
Dags. 11. Nóvember 2019

Íþrótta-og æskulýðsnefnd Grundarfjarðarbæjar

 

Fundargerð

 

 

93. fundur íþrótta- og æskulýðsnefndar haldinn í Ráðhúsi Grundarfjarðar,

 mánudaginn 11. nóvember 2019, kl. 20:00.

 

 

Fundinn sátu:

Bjarni Georg Einarsson (BGE), formaður, Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB), Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir (IEB) og Björg Ágústsdóttir (BÁ), bæjarstjóri.

 

Fundargerð ritaði:Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri.

 

Formaður setti fund og bauð nefndarfólk og gesti velkomna á fundinn. Gengið var til dagskrár.

 

1.

Tilnefningar til íþróttamanns ársins 2019 - 1911001

Fram voru lagðar sex tilnefningar íþróttamanna vegna ársins 2019 frá íþróttafélögum og frá deildum UMFG. Farið var yfir tilnefningar og reglur sem um kjörið gilda.

Gengið var til kjörs á íþróttamanni ársins í samræmi við reglurnar. Niðurstöðu verður haldið leyndri þar til íþróttafólk ársins verður heiðrað á aðventudegi Kvenfélagsins Gleym-mér-ei í samkomuhúsinu sunnudag 1. des. nk.

Bæjarstjóri mun sjá til þess að farandbikar verði áritaður og að verðlaunaskjöldur verði útbúinn fyrir íþróttamann ársins. Aðrir íþróttamenn fái blómvönd. Öll fái þau áritað skjal.

Fulltrúum íþróttafélaganna var þökkuð koman og viku þau af fundi.

Nefndin ræddi um reglur um kjör íþróttamanns Grundarfjarðar, frá 29. okt. 2014.
Nefndin telur kominn tíma til að yfirfara reglurnar og mun gera það á nýju ári og setja fram tillögu um breytingar ef ástæða þykir til.

Gestir

Tómas Freyr Kristjánsson f.h. stjórnar UMFG -

Jón Pétur Pétursson f.h. Skotgrundar, Skotfélags Snæfellsness -

Halldóra Hjörleifsdóttir f.h. stjórnar UMFG -

Signý Gunnarsdóttir varamaður í nefndinni -

Kristján Magni Oddsson f.h. Hesteigendafélags Grundarfjarðar -

Kristín Pétursdóttir f.h. Golfklúbbsins Vestarrs -

 

 

2.

Þríhyrningur - hugmyndir, hönnun, endurbætur - 1908016

Nefndin vinnur að tillögu til bæjarstjórnar um hvernig megi byggja upp áhugavert útivistarsvæði í Þríhyrningi.

Nefndin stillti upp og gekk frá minnisblaði nr. 2 til bæjarráðs, þar sem sett er fram tillaga um næstu skref og fyrsta áfanga verkframkvæmda sem nefndin óskar eftir að fari fram 2020. Minnisblaðið verði kynnt bæjarráði vegna fjárhagsáætlunargerðar 2020.

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundargerð yfirlesin og samþykkt.

 

Fundi slitið kl. 22:47.

 

 

Bjarni Georg Einarsson (BGE)

 

 Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB)

Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir (IEB)

 

 Björg Ágústsdóttir (BÁ)


Til baka
 
Grundarfjarðarbær Borgarbraut 16, 350 Grundarfirði | kt.: 520169-1729
Sími: 430 8500 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Opið alla virka daga kl. 10-14.
Fyrirspurnir | Veftré | Leit