Mæting hjá Samkaup kl. 11:00| 10. júní, sunnudagur. Egilsskarð – Helgrindur
Gengið frá byggðinni í Grundarfirði upp í Egilsskarð, að Tröllkerlingu, Rauðukúlu og vestur eftir Helgrindum, til að líta á landslagið sem hin nýja gönguleið eftir fjallgarðinum mun liggja um. Áhugaverð ganga í stórbrotnu landslagi. Til baka í Grundarfjörð verður farið niður Þröskuldadal og Langahrygg.
Mæting við Samkaup kl. 11:00 að morgni. Fararstjóri: Gunnar Njálsson (s. 690 2764). Verð: 600 / 800 kr.
| |