Íþrótta – og tómstundanefnd Grundarfjarðarbæjar
Fundargerð
45. fundur íþrótta – og tómstundanefndar Grundarfjarðarbæjar, haldinn mánudaginn 23. nóvember 2009, kl. 16.00, á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar.
Mætt eru: Þórdís Anna Guðmundsdóttir, formaður, Dóra Aðalsteinsdóttir, Jóhanna Níelsdóttir og Kristín Pétursdóttir, aðalbókari, sem ritar fundargerð.
Formaður bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár.
1. Félagsmiðstöðin Eden
Ragnheiður Benediktsdóttir umsjónarmaður félagsmiðstöðvarinnar mætti á fundinn og sagði frá starfinu og hvernig gengi eftir breytingarnar sem gerðar hafa verið á félagsmiðstöðinni.
Ragnheiður vék af fundi.
Íþrótta- og tómstundanefnd telur fram hjá sér gengið með ákvarðanatöku ýmissa mála sem snerta íþrótta – og tómstundamál í Grundarfirði. Má þar nefna breytingar félagsmiðstöðvarinnar.
2. Kjör íþróttamanns Grundarfjarðar.
Kallað hafði verið eftir tilnefningum til Íþróttamanns Grundarfjarðar 2009 og höfðu fjórar tilnefningar borist. Ákveðið var að senda út til allra formanna íþróttafélaga, tilnefningarnar og kosningaeyðublað strax daginn eftir og á miðvikudag 25.11. kl. 16.00 yrðu allir kallaðir saman á bæjarskrifstofuna til kosningar.
3. Önnur mál
Ekkert fyrirliggjandi
Fleira ekki gert
Fundi slitið kl. 16.45
Þórdís Anna Guðmundsdóttir, formaður
Jóhanna Níelsdóttir
Dóra Aðalsteinsdóttir
Kristín Pétursdóttir |