|
|
 |
|
|
 |
13. maí 2011 12:06 |
Vel mætt á íbúafund |

Bæjarstjórn Grundarfjarðar stóð fyrir opnum íbúafundi í Samkomuhúsinu síðastliðinn miðvikudag. Vel var mætt á fundinn og vildu talnaglöggir meina að yfir 70 manns hefðu verið á svæðinu. |
Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar héldu kynningu á stöðu hinna ýmsu mála. Þar má telja breytingar á samþykkt um hundahald, ábendingar frá íbúafundi í nóvember sl., fyrirhugaðar framkvæmdir og samfélagsmiðstöð. Þá hélt Birgir Kristjánsson frá Íslenska gámafélaginu kynningu á þriggja tunnu sorpflokkun og Björg Ágústsdóttir frá Alta kynningu á hugmyndum um svæðisgarð á Snæfellsnesi. Boðið var upp á opnar fyrirspurnir og nýttu fundargestir sér tækifærið og fram komu margar góðar spurningar og ábendingar. |
Til baka
|
|
|
yfirlit frétta
|
|
|
 |
 |
Áskrift að fréttum |
 |
| |
| |  | Gott að vita |  |


|  |  | Vefmyndavél |  |
|  |  | Gaman að skoða |  |


|  |
|