Tillögurnar ásamt greinargerðum,verða til sýnis á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar,Grundargötu 30, á skrifstofutíma, frá og með fimmtudeginum 22. desember nk. til og með 2. Febrúar 2012. Einnig munu tillögurnar verða aðgengilegar á heimasíðu bæjarins www.grundarfjordur.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til og með 2. Febrúar 2012. Skila skal skriflegum athugasemdum til umhverfisnefndar bæjarins á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Grundargötu 30. 350 Grundarfirði. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna, teljast henni samþykkir.
Grundarfirði, 17.desember 2011
Skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar
|