Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Mánudagur 20. maí 01:44
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Valmynd
Fréttir
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Eyðublöð
Fjármál
Fundargerðir
Fyrirspurnir
Gjaldskrár
Greinasafn
Nefndir og ráð
Markmið og stefnur
Reglur og samþykktir
Skipulags- og byggingarmál
Skipurit
Sorpmál
Starfsmenn
Stofnanir
Stjórnsýsla, Fréttir  Prenta síðu
29. desember 2011 17:29

Snjómokstur

Undanfarið hefur snjóað meira í Grundarfirði en menn eiga að venjast síðustu ár. Eins og við er að búast eru skoðanir manna um moksturinn mjög skiptar. Sumum finnst illa mokað á meðan öðrum finnst mokað hóflega eða jafnvel of mikið. Í þessu er reynt að fara hinn gullna meðlaveg, en seint mun snjómokstur uppfylla ýtrustu kröfur allra.

 

Íbúar eru beðnir að sýna því skilning að við núverandi ástand er erfitt að halda öllum götum færum fyrir alla bíla. Þá er útilokað að moka gangstíga og gangstéttir við þessar aðstæður. Ökumenn eru sérstaklega beðnir að sýna gangandi vegfarendum tillitssemi, því gangstéttir eru víðast ófærar. Miklir snjóruðningar eru við gatnamót og eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát þar sem snjóruðningar hindra útsýni.

 

Meginmarkmið með snjómokstri er að minnka þau óþægindi sem snjór  veldur einstaklingum, fyrirtækjum og skólahaldi. Markmiðið er ekki að halda götum hreinum, heldur að gera íbúum kleift að komast ferða sinna með viðunandi hætti.

 

Þéttbýli Grundarfjarðar er skipti upp í tvö forgangssvæði:

  • Forgangssvæði 1 eru þær götur sem eru umferðarþungar og mikilvægt er að séu færar vegna öryggismála.  Miðað er við að mokstri á þessum götum sé lokið fyrir klukkan 08:00 á virkum dögum.
  • Forgangsvæði 2 eru almennar íbúðagötur og eru þær mokaðar eftir að mokstri gatna í flokki 1 er lokið.

 

Snjómokstur á göngustígum er þannig að fyrst eru mokaðar fjölfarnar gönguleiðir sem liggja að skólum. Þar á eftir eru aðrar fjölfarnar gönguleiðir mokaðar. Þegar hálku gætir eru þær hálkuvarðar. Þegar snjómagn er mikið getur verið illmögulegt og jafnvel útilokað að moka gangstéttir og stíga.

 

Vegagerðin er veghaldari á þjóðveginum utan þéttbýlis.  Snjómokstursáætlun er að sjá á heimasíðu Vegagerðarinnar.  Stjórn snjómokstursins er alfarið á vegum Vegagerðarinnar.

 

Aðrar upplýsingar varðandi snjómokstur:

  • Reynt er að haga snjómokstri þannig að fyrst er „stungið í gegn“ og mynduð slóð og ræður þar forgangsröð gatna áður en byrjað er að breikka slóðina.
  • Reynt er að gæta þess, þegar mokað er, að snjór hindri ekki útsýni við gatnamót eða skapi bæði gangandi og akandi vegfarendum hættu.
  • Reynt er að lágmarka umferð snjómoksturstækja við skóla á mesta annatíma barna til og frá skóla.
  • Mokstur í íbúðagötum er á tímabilinu kl. 05-23.
  • Plön við heimahús eru ekki mokuð á kostnað sveitarfélagsins.
  • Mokstur vegna öryrkja er aðeins framkvæmdur samkvæmt beiðni félagsþjónustunnar.
  • Ekki er mokað meðan veður er slæmt og líkur eru á að færð spillist.

 

Hafa ber í huga að þessar reglur eru viðmiðunarreglur og ber að líta á þær sem slíkar. Fátt er jafn breytilegt og veðurfar og snjóalög.

 

Allar ábendingar um snjómokstur eru vel þegnar og skulu tilkynnast til verkstjóra áhaldahúss Grundarfjarðar í síma 6914343 eða í netfangið ahaldahus@grundarfjordur.is. Einnig má koma ábendingum til bæjarskrifstofunnar í síma 4308500 eða í netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is.

 

Það eru vinsamleg tilmæli til íbúa sveitarfélagsins að sýna þolinmæði og tillitssemi við þessar kringumstæður.

 


Til baka



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta

Áskrift að fréttum
 
Fréttasafn
Á döfinni
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Maí 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fundargerðir
30.apríl 2013
160. fundur bæjarstjórnar
29.apríl 2013
15. fundur hafnarstjórnar
26.apríl 2013
434. fundur bæjarráðs
24.apríl 2013
109. fundur skólanefndar
 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar