Með kórunum leika Einar Arnaldur Melax á mandólín, Jóhanna Guðmundsdóttir á píanó og Ragnar Alfreðsson á bassagítar. Á efnisskránni eru kirkjuleg verk og létt dægurlög við allra hæfi.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis og eru bæjarbúar, Eyrsveitungar og aðrir áhugamenn um kóratónlist boðnir innilega velkomnir.
|