|
|
 |
|
|
 |
23. ágúst 2004 09:46 |
Sigur hjá 4.fl.karla |
Strákarnir fóru í Kópavoginn á föstudag til að spila á móti efsta liði riðilsins og voru ekki allt of sigurvissir. |
Leikurinn hófst með því að Blikarnir skora um miðjan fyrri hálfleik en Heimir jafnar með góðu marki örfáum mínútum seinna. Ingólfur skorar svo annað mark okkar og staðan því orðin 2-1 fyrir okkur, en dómarinn dæmdi á okkur víti sem Viktor varði glæsilega en Blikarnir fylgdu fast á eftir spyrnunni og skoruðu.Þegar 8 mínútur voru eftir var Ingólfur felldur inn í teig og fengum við vítaspyrnu sem Brynjar skoraði úr og lokatölur því 3-2 fyrir okkar menn. Allur hópurinn átti góðan leik og sýndu að þeir eru til alls líklegir þegar hugarfarið og baráttan eru til staðar. |
UMFG |
Til baka
|
yfirlit frétta
|
|
|
 |
 |
Áskrift að fréttum |
 |
| |
| |  | Gott að vita |  |


|  |  | Vefmyndavél |  |
|  |  | Gaman að skoða |  |


|  |
|