RG var stofnað árið 2003 og eru helstu eigendur Reykofninn ehf. í Kópavogi, FISK Seafood hf. og Byggðastofnun. Fyrirtækið hefur aðsetur í Grundarfirði, í hluta af húsnæði FISK-Seafood hf. eins og Fiskiðjan heitir í dag.
Kári P. Ólafsson er framkvæmdastjóri RG og hann segir sölumál fyrir sæbjúgnaafurðirnar líta verulega vel út í dag, en vandkvæði hafi þó verið með hráefnisöflun.
Kári segir að erlendu kaupendurnir hafi ákveðnar óskir um framleiðsluaðferðir. Þessa dagana er verið að breyta húsnæði FISK til að koma þar fyrir gufukatli og meiri tækjabúnaði til að koma á móts við óskir kaupandans.
Kári gat þess að samvinna fyrirtækja hér í Grundarfirði virtist vera með besta móti því „Soffanías Cecilsson hf. gerði sér lítið fyrir og gaf okkur gufuketil einn ágætan og viljum við þakka kærlega fyrir hann“ sagði Kári. |