Helstu verkefni og ábyrgð við Leikskólann Sólvelli
· Þátttaka í þróun leikskólastarfsins í samvinnu við stjórnendur.
· Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
· Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs.
· Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð við leikskóladeildina Eldhamra
· Þróun 5 ára deildar í samstarfi við aðra stjórnendur.
· Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
· Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs.
· Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
· Áhugi á að vinna með börnum.
· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
· Frumkvæði í starfi.
· Góð íslenskukunnátta.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um Leikskólann Sólvelli veitir Anna Rafnsdóttir, skólastjóri, í síma 438 6645 eða með fyrirspurn á netfangið solvellir@gfb.is
Nánari upplýsingar um leikskóladeildina Eldhamra veitir Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri, í síma 430 8550 eða með fyrirspurn á netfangið sigurdur@gfb.is
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 30. apríl nk. á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is, sigurdur@gfb.iseða solvellir@gfb.is
Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda.
Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2018.
|