Helstu verkefni og ábyrgð:
· Þátttaka í þróun leikskólastarfsins í samvinnu við stjórnendur.
· Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
· Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs.
· Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum.
Hæfniskröfur:
· Leikskólakennaramenntun.
· Önnur kennara- eða uppeldismenntun.
· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
· Frumkvæði og metnaður til að skila góðu starfi með hópi samstarfsfólks.
· Góð íslenskukunnátta.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um Leikskólann Sólvelli veitir Anna Rafnsdóttir, skólastjóri, í síma 438 6645 eða með fyrirspurn á netfangið annaraf@gfb.is
Umsóknum skal skilað á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is eða solvellir@gfb.is
Umsóknarfrestur er til 4. apríl 2019.
Vakin er athygli á stefnu Leikskólans Sólvalla um jafnan hlut kynja í störfum. Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær mun óska eftir sakavottorði umsækjenda síðar í umsóknarferlinu.
|