Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Miðvikudagur 19. júní 23:42
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Valmynd
Fréttir
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Eyðublöð
Fjármál
Fundargerðir
Fyrirspurnir
Gjaldskrár
Greinasafn
Nefndir og ráð
Markmið og stefnur
Reglur og samþykktir
Skipulags- og byggingarmál
Skipurit
Sorpmál
Starfsmenn
Stofnanir
Stjórnsýsla, Fréttir  Prenta síðu
26. október 2005 10:34

Nýr vegur yfir Kolgrafafjörð formlega vígður

Föstu­daginn 21. október sl. opnaði sam­göngu­ráð­herra formlega nýjan veg um Kolgrafafjörð.

 

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra klippir á borðann ásamt Jóni Rögnvaldssyni vegamálastjóra. Mynd: G. Kristj.

Verkið var boðið út í febrúar 2003. Samið var við Háfell ehf. og Eykt ehf. um verkið og hófust framkvæmdir í lok apríl 2003. Vegurinn var lagður bundnu slitlagi og opnaður fyrir umferð haustið 2004 sem var 6 mánuðum á undan áætlun. Verktakinn lauk síðan við sinn hluta verksins sl. sumar.

 

Eftirlit og umsjón með þessari framkvæmd var í höndum framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar í Borgarnesi.

 

Með nýjum vegi yfir Kolgrafafjörð styttist leiðin á norðanverðu Nesinu um 6-7 km auk þess sem nú verður komið bundið slitlag á alla leiðina milli þéttbýlisstaðanna. Þetta styrkir mikið allan samgang milli staðanna og eykur möguleika þeirra á margvíslegri samvinnu. Gott dæmi um þetta er stofnun nýs framhaldsskóla í Grundarfirði. Nýi vegurinn verður auk þess mun öruggari en gamli vegurinn sem var frekar hlykkjóttur malarvegur og lá um mjög erfitt og varasamt veðursvæði í botni fjarðarins.

 

Vegurinn er byggður í vegflokki C1, með heildarbreidd 7,5 m en þar af  er slitlagið 7,0 m breitt. Á fyllingunni yfir fjörðinn er heildarbreidd vegarins hins vegar 9,5 m. Brúin sem liggur vestan megin í firðinum við Hjarðarbólsoddann er 230 m löng og var lengd hennar miðuð við að sjávarföll yrðu nær óbreytt frá því sem áður var. Í veginn fóru um 620 þúsund rúmmetrar af möl og auk þess voru notaðir um 120 þúsund rúmmetrar af grjóti í rofvörn sjávarfyllingarinnar. Í brúna fóru um 2.440 rúmmetrar af steypu og um 178 tonn af steypustyrktarjárni.

 


Til baka


yfirlit frétta

Áskrift að fréttum
 
Fréttasafn
Á döfinni
SMÞMFFL
2627282930311
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30123456
Júní 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fundargerðir
13.júní 2013
161. fundur bæjarstjórnar
4.júní 2013
437. fundur bæjarráðs
28.maí 2013
436. fundur bæjarráðs
22.maí 2013
70. fundur menningar- og tómstundanefndar
 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar