Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Þriðjudagur 21. maí 17:32
  General 
   
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Maí 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fundargerðir
30.apríl 2013
160. fundur bæjarstjórnar
29.apríl 2013
15. fundur hafnarstjórnar
26.apríl 2013
434. fundur bæjarráðs
24.apríl 2013
109. fundur skólanefndar
Spurningin

Ert þú sátt/ur við úrslit alþingiskosninganna?

Nei

Alveg sama

Vill ekki svara

Stjórnsýsla - Nýlegt safn
Daglegt líf - Nýlegt safn
General  Prenta síðu
30. ágúst 2006 09:02

Húsateikningar í Grundarfjarðarbæ komnar á vefinn!

Fyrir nokkrum misserum var ákveðið að hrinda í framkvæmd átaki við að koma öllum bygginganefnda- og verkfræðiteikningum af húsbyggingum í Grundarfjarðarbæ yfir á tölvutækt form og gera þær þannig aðgengilegar á heimasíðu bæjarfélagsins. Verkefnið var upphaflega ákveðið í tengslum við „tæknibæjarverkefnið“ en í því verkefni fólust tillögur að því að bæta stjórnsýsluna og auðvelda almenningi aðgang að ýmsum upplýsingum. Í þessum tilgangi hefur starfsfólks bæjarskrifstofunnar unnið markvisst að því að bæta heimasíðu bæjarfélagsins með sífellt aðgengilegri upplýsingum.

 

Í aðdraganda þessa teikningaátaks var samið við Snertil ehf. um sjálfa skönnunina og um uppsetningu á kerfi til að halda utan um teikningarnar. Verkið er komið vel á veg en þegar er búið að koma öllum teikningum af íbúðarhúsnæði í bæjarfélaginu á tölvutækt form, einnig öllum sumarhúsateikningum og teikningum allra mannvirkja á bújörðum. Búið er að skanna hluta iðnaðarhúsnæðis en þeirri vinnu hefur ekki verið lokið að fullu ennþá. Þessar teikningar eru nú aðgengilegar öllum og geta íbúar skoðað og prentað sjálfir teikningar heima hjá sér. Hönnuðir geta einnig nýtt sér þennan aðgang í tengslum við sína vinnu.

 

Kerfið býður upp á fleiri möguleika heldur en að halda utan um teikningar. Í framhaldinu verða allir skipulagsuppdrættir (aðal- og deiliskipulag) settir inn í kerfið, teikningar af vatnsveitu- hitaveitu- og fráveitulögnum og upplýsingar um gatnakerfi svo eitthvað sé nefnt. Kerfið býður einnig upp á íbúavef og rafrænar umsóknir auk upplýsinga um hina ýmsu þjónustu í bæjarfélaginu. Ofangreindir möguleikar eru ennþá í vinnslu.

 

Hægt er að komast inn í kerfið með því að smella á teikningar af húsum í bænum á hægri væng forsíðunnar eða með því að smella hér. Til þess að geta komist áfram í kerfinu þarf að hafa uppsett ActiveX Component. Flest stýrikerfi bjóða uppá uppsetningu þegar síðan er opnuð. Annars er hægt að nálgast ActiveX Component með því að smella hér og velja English.

 


Til baka


yfirlit frétta

Áskrift að fréttum
 
Fréttasafn
Gott að vita


             

 


 Senda fyrirspurn 



Svæðisgarður á Snæfellsnesi


Um Grundarfjörð

Grundapol á Íslandi

Strætó


Sorphirða


 Fundir bæjarstjórnar


Gjaldskrár

Eldri borgarar
 

Vefmyndavél

 

Gaman að skoða

 

 

 

Myndir frá 50 ára

sögu grunnskólans 

 

Myndabanki

 

Örnefnavefur

 


   

 

 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar