|
|
 |
|
|
 |
26. janúar 2007 13:47 |
Grundarfjarðarhöfn er orðin tollhöfn |
Ánægjulegur áfangi hefur náðst í starfsemi Grundarfjarðarhafnar. Frá og með 1. janúar 2007 er höfnin skilgreind sem tollhöfn. Fyrir 2 - 3 árum var farið að sækja um það til fjármálaráðherra að höfnin öðlaðist þennan sess. Málið tafðist nokkuð á meðan reglugerð um vörslu og tollmeðferð vöru var í endurskoðun, en nú er niðurstaða fengin. Þetta mun gagnast útflutningsfyrirtækjum í Grundarfirði og einnig efla stöðu hafnarinnar sem inn- og útflutningshafnar. Verið er að kanna til hlýtar þessa dagana á hvern hátt starfsemi hafnarinnar verður sem best aðlöguð að þessari nýju stöðu. Hafnarstjórninni og hafnarverðinum er óskað til hamingju með þennan áfanga. |
|
Bæjarstjóri |
Til baka
|
yfirlit frétta
|
|
|
 |
 |
Áskrift að fréttum |
 |
| |
| |  | Gott að vita |  |


|  |  | Vefmyndavél |  |
|  |  | Gaman að skoða |  |


|  |
|