
Miðvikudaginn 4. apríl sl. var efnt til móttöku og athafnar þegar Hótel Framnes var enduropnað af nýjum eigendum. Gísli Ólafsson og Shelagh Jessie Smith keyptu hótelið af fyrri eigendum á síðastliðnu hausti. Unnið hefur verið hörðum höndum að endurbótum og endurskipulagningu innréttinga í hótelinu. Móttakan og veitingastofan hafa verið flutt á jarðhæðina en í staðinn fjölgar herbergjum á 2. hæðinni. Öll herbergi hótelsins, 27 að tölu, eru með sér baði og sum bjóða upp á litla eldhúsaðstöðu fyrir fjölskyldufólk.
Eigendurnir lýstu fyrir boðsgestum breytingunum og endurbótunum sem þegar er að fullu lokið við og einnig þeim sem enn eru í smíðum. Öllum sem komu að vinnu við endurbæturnar var þakkað fyrir fórnfús störf. Aðstaðan í móttökunni og veitinga-aðstöðunni er vönduð og hlýleg. Gestum var svo boðið upp á kræsingar sem gestakokkurinn Bjartmar Pálmason framreiddi með glæsibrag. |