|
|
 |
|
|
 |
6. júní 2007 16:11 |
Umsókn um unglingalandsmót UMFÍ |
Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu (HSH) sendi frá sér umsókn í samstarfi við Grundarfjarðarbæ um að unglingalandsmót UMFÍ verði haldið í Grundarfirði árið 2009. Sótt var um að árið 2010 kæmi til greina ef árið 2009 félli ekki í hlut Grundarfjarðar. Á árinu 2006 var fyrst send inn umsókn frá Grundarfjarðarbæ um unglingalandsmótið 2009. Mikill áhugi er fyrir því að mótið verði haldið hér í Grundarfirði og m.a. tekur væntanleg uppbygging íþróttamannvirkja á staðnum mið af þessum möguleika. Haldið verður áfram að sækja um þetta þangað til árangur næst og mótið verður haldið hér, vonandi þegar árið 2009. |
|
Til baka
|
yfirlit frétta
|
|
|
 |
 |
Áskrift að fréttum |
 |
| |
| |  | Gott að vita |  |


|  |  | Vefmyndavél |  |
|  |  | Gaman að skoða |  |


|  |
|