|
|
 |
|
|
 |
21. október 2007 19:16 |
Vinnuverndarvikan 2007, Hæfilegt álag er heilsu best |
Vinnuverndarvikan 2007 verður 22. til 26. október næstkomandi. Vikan fjallar að þessu sinni um orsakir líkamlegra álagseinkenna s.s. verki í baki, hálsi og herðum.
Hápunktur vikunnar er ráðstefnan Hæfilegt álag er heilsu best sem fjallar um varnir gegn líkamlegum álagseinkennum. Ráðstefnan verður á Grand Hótel 23. október kl. 13.00 – 16.00, hún er öllum opin og aðgangur ókeypis. Þátttaka tilkynnist til Vinnueftirlitsins í síma 550 4600 eða á netfangið gudrun@ver.is. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér www.vinnueftirlit.is. |
|
|
|
|
Aðrir viðburðir í vinnuverndarvikunni eru m.a.:
- Eftirlitsmenn Vinnueftirlitsins heimsækja valda vinnustaði og verður sjónum einkum beint að verslunum og flutninga- og lagerfyrirtækjum. Dreift verður veggspjaldi og bæklingi með gátlista um líkamsbeitingu.
- Viðurkenningar verða veittar fyrirmyndar-fyrirtækjum sem hafa markvist unnið að aðgerðum gegn líkamlegum álagseinkennum t.d. gert áhættumat og áætlun um forvarnir.
- Fjölda stærri fyrirtækja hefur verið sent veggspjald og hugmyndalisti að aðgerðum til að styðjast við í vinnuverndarvikunni.
- Vinnueftirlitið hvetur atvinnurekendur og starfsfólk til að taka virkan þátt í vinnuverndarvikunni. Fræðsluefni og hugmyndir má m.a. sækja á vefsíðu Vinnueftirlitsins, www.vinnueftirlit.is, hugmyndalisti fyrir vinnustaði.
- Aðilar vinnumarkaðarins munu kynna vinnuverndarvikuna og hvetja atvinnurekendur og starfsfólk til góðra verka í vikunni.
- Hvatningarbréf um þátttöku var sent markhópum og hönnuðum vinnustaða til að árétta mikilvægi starfs þeirra m.t.t. vinnuverndarsjónarmiða.
- Starfsmenn Vinnueftirlitsins munu halda fræðsluerindi og skrifa blaðagreinar sem verða birtar í vikunni.
| |
Til baka
|
yfirlit frétta
|
|
|
 |
 |
Áskrift að fréttum |
 |
| |
| |  | Gott að vita |  |


|  |  | Vefmyndavél |  |
|  |  | Gaman að skoða |  |


|  |
|