
Nesbyggð ehf. gaf Slökkviliði Grundarfjarðarbæjar og slökkviliði Snæfellsbæjar gamla húsið að Búlandshöfða til slökkviliðsæfinga. Laugardaginn, 9. mars sl. var síðan farið í æfingar og úr varð mikil og góð æfing fyrir slökkviliðsmenn.
Slökkviliðin vilja koma fram þakklæti til eigenda Nesbyggðar ehf. fyrir góða gjöf sem nýttist þeim vel við æfingar.
Hér má sjá myndir frá æfingunni. |