Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Laugardagur 25. maí 15:14
  General 
   
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Maí 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fundargerðir
30.apríl 2013
160. fundur bæjarstjórnar
29.apríl 2013
15. fundur hafnarstjórnar
26.apríl 2013
434. fundur bæjarráðs
24.apríl 2013
109. fundur skólanefndar
Spurningin

Ert þú sátt/ur við úrslit alþingiskosninganna?

Nei

Alveg sama

Vill ekki svara

Stjórnsýsla - Nýlegt safn
Daglegt líf - Nýlegt safn
Stjórnsýsla - fréttir  Prenta síðu
5. október 2009 11:42

Viðamikil sjóbjörgunaræfing í Grundarfirði

Frétt á vef Skessuhorns 4. október 2009:

Í gær hófst samæfing björgunarsveita á sjó við Grundarfjörð og í Kolgrafarfirði. Aðstæður til æfinga voru töluvert erfiðar og reyndi mjög á mannskap en það gerði verkefnið enn meira krefjandi. Á æfinguna voru mættir 17 hópar frá björgunarsveitum frá Akranesi, Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Árborg, Suðurnesjunum, Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ en æfinginn var skipulögð af björgunarsveitunum á Snæfellsnesi. Hún er liður í landsæfingu Landsbjargar og verður önnur æfing haldin helgina 24. október sem snýr að björgun á landi.

Björgunaræfinginn fólst í því að leyst voru 27 verkefni af ýmsum toga. Má þar nefna mann sem slasaðist á skotæfingasvæðinu inni í Kolgrafarfirði en það var mjög krefjandi verkefni þar sem þurfti að fara undir brú á slöngubátnum þar í miklum straumi. Breiðleitaræfing var á Grundarfirði sem unnin var með stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð.

 

Þá var æfð leitarköfun innan hafnar þar sem bílflaki hafði verið komið fyrir með brúðum og þurftu kafarar að ná þeim úr flakinu og koma í land, fara um borð í bát með dælur og athuga með slasaða um borð í báti. Að lokum var stórt hópslys við klettótta strönd þar sem sækja þurfti slasaða sjóleiðina og koma þeim til Grundafjarðar.

 

Æfingunum var stjórnað frá húsnæði slysavarnarfélagsins í Grundarfirði og voru þar Eyþór Garðarsson og Ketilbjörn Benediktsson frá Klakki Grundarfiði, Davíð Óli Alexandersson, Þór Magnússon og Þórarinn Steingrímsson frá Lífsbjörgu í Snæfellsbæ og Sumarliði Ásgeirsson frá Berserkjum í Stykkishólmi við stjórnvöllinn ásamt Sigurði Viðarssyni frá höfuðstöðvum Landsbjargar. Var það samdóma álit þeirra sem þátt tóku í æfingunni að vel hafi tekist til.  Um 150 manns komu að æfingunni á einn eða annan hátt.

 

Sjá fleiri myndir Stefáns Ingvars Guðmundssonar og frásögn í næsta Skessuhorni.

 


Til baka


yfirlit frétta

Áskrift að fréttum
 
Fréttasafn
Gott að vita


             

 


 Senda fyrirspurn 



Svæðisgarður á Snæfellsnesi


Um Grundarfjörð

Grundapol á Íslandi

Strætó


Sorphirða


 Fundir bæjarstjórnar


Gjaldskrár

Eldri borgarar
 

Vefmyndavél

 

Gaman að skoða

 

 

 

Myndir frá 50 ára

sögu grunnskólans 

 

Myndabanki

 

Örnefnavefur

 


   

 

 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar