Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Miðvikudagur 22. maí 22:13
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Valmynd
Fréttir
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Eyðublöð
Fjármál
Fundargerðir
Fyrirspurnir
Gjaldskrár
Greinasafn
Nefndir og ráð
Markmið og stefnur
Reglur og samþykktir
Skipulags- og byggingarmál
Skipurit
Sorpmál
Starfsmenn
Stofnanir
Stjórnsýsla, Gjaldskrár  Prenta síðu
Flokkar: Félagsmál og allir flokkar

21. mars 2006

Um stuðning við daggæslu í sveitarfélaginu

Á fundi fræðslunefndar bæjarins 13. mars sl. var rætt um skipan daggæslumála, stuðning sveitarfélagsins við daggæslu ungra barna og kynningu á úrræðum. Hér koma nokkrir punktar um daggæslumálefni í Grundarfirði.

 

Leikskólinn Sólvellir tekur alla jafna inn börn við 2ja ára aldur, en börn geta þó verið yngri þegar þau komast inn.

 

Starf dagforeldra er mjög mikilvægt, börnin eru ung þegar þau fara í vistun til þeirra eða á aldrinum 9 mánaða til eins árs og dvelja hjá þeim þar til þau eru u.þ.b. tveggja ára. Um daggæslu barna í heimahúsum gildir reglugerð félagsmálaráðuneytisins nr. 907/2005. Hún tekur til gæslu barna fram að grunnskólaaldri í heimahúsum, sem rekin er í atvinnuskyni. Þar segir að sveitarfélögin beri ábyrgð á því að höfð sé umsjón og eftirlit með starfsemi dagforeldra. Ennfremur að það sé félagsmálanefnd/ráð í hverju sveitarfélagi sem ber almenna ábyrgð á velferð barna í sveitarfélaginu og skuli sjá til þess að aðbúnaði þeirra sé ekki áfátt. Segir að félagsmálanefnd (félagsþjónustan) skuli veita leyfi til daggæslu barna í heimahúsum og þannig er það á Snæfellsnesi, hér sér Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga um daggæslumálefni.

 

Því miður hefur á liðnum árum borið á nokkrum skorti á dagforeldrum og getur það verið mjög bagalegt, enda þurfa flestir foreldrar að snúa aftur til vinnu eftir að fæðingarorlofi lýkur.

 

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi og Félagsþjónusta Snæfellinga gerðu í vetur ráðstafanir til að reyna að greiða fyrir starfsemi dagforeldra og daggæslu í heimahúsum. Þær fólust í eftirfarandi, sbr. auglýsingar sem birtust í Þey og á bæjarvefnum:

             

·        Félagsþjónustan kom að 60 kennslustunda námskeiði sem Símenntunarmiðstöð Vesturlands hélt í febrúar sl. fyrir dagforeldra Boðið var uppá kennslu í gegnum fjarfundabúnað, en því miður var dræm þátttaka af Snæfellsnesi.

·        Sveitarfélögin samþykktu að styrkja verðandi dagforeldra um helming námskeiðsgjalds, 25.000 kr. af 50.000 kr. (auk þess að útvega kennsluhúsnæði og bera kostnað af nýtingu fjarkennslubúnaðar)

·        Bæjarstjórnir Grundarfjarðar, Stykkishólms og Snæfellsbæjar samþykktu reglur um niðurgreiðslu á dagvistunargjöldum foreldra með börn í dagvistun hjá dagforeldrum sem hafa leyfi til daggæslu.

 

Umræddar reglur fela í sér að sveitarfélögin niðurgreiða kostnað foreldra sem eru með börn, 6-24 mánaða (eldri börn, ef biðlisti er á leikskóla) hjá dagforeldrum sem hafa leyfi til daggæslu. Niðurgreiðslan miðast við 4 stundir hið minnsta og 9 stundir hið mesta. Fyrir 8 klst. daggæslu getur niðurgreiðslan numið 12.400 kr. á mánuði fyrir hjón/sambúðarfólk, en 16.000 kr. fyrir einstæða foreldra og foreldra í námi. Viðbótargreiðsla vegna systkina getur numið allt að 5.500 kr. á mánuði. Reglurnar tóku gildi 1. janúar sl. og er að finna á bæjarvefnum (undir: stjórnsýsla – reglur og samþykktir – félagsmál).

 

Þeir sem vilja kynna sér daggæslumálefni í sveitarfélaginu eða eiga önnur erindi tengd félagsþjónustu og barnavernd, geta haft samband við Félagsþjónustu Snæfellinga, Vigdísi Gunnarsdóttur félagsráðgjafa í síma 430-7800 eða í netfangið vigdis@skoli.net.

 

Vigdís er með fasta viðtalstíma á bæjarskrifstofunni í Grundarfirði á föstudögum kl. 9.30 til 14.00 (þá daga í síma 430 8500) og aðra daga eftir samkomulagi. Einnig við Sigþrúði Guðmundsdóttur forstöðumann Félagsþjónustunnar í síma 430 7800 eða í netfangið sig@skoli.net   

 

Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri

 

Grein birt í Þey 16. mars og á Grundarfjarðarvefnum 21. mars 2006.


Til baka
Áskrift að fréttum
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Maí 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fundargerðir
30.apríl 2013
160. fundur bæjarstjórnar
29.apríl 2013
15. fundur hafnarstjórnar
26.apríl 2013
434. fundur bæjarráðs
24.apríl 2013
109. fundur skólanefndar
 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar