Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Fimmtudagur 23. maí 13:24
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Maí 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fundargerðir
30.apríl 2013
160. fundur bæjarstjórnar
29.apríl 2013
15. fundur hafnarstjórnar
26.apríl 2013
434. fundur bæjarráðs
24.apríl 2013
109. fundur skólanefndar
Spurningin

Ert þú sátt/ur við úrslit alþingiskosninganna?

Nei

Alveg sama

Vill ekki svara

Stjórnsýsla - Nýlegt safn
Daglegt líf - Nýlegt safn
Ráðningar starfsmanna  Prenta síðu

Starfsreglur bæjarstjórnar Grundarfjarðar við ráðningu starfsmanna

 

1. gr.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra, sbr. 59. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar. Bæjarstjórn gerir skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra og staðfestir hann.

 

2. gr.

Bæjarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu og veitir þeim lausn frá störfum, sbr. 61. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar. Helstu stjórnunarstöður, s.s. yfirmenn stofnana, deilda og fyrirtækja sveitarfélagsins og einstök önnur störf til viðbótar eru þessi;

 

  1. Skólastjóri og aðstoðarskólastjóri grunnskóla, að fenginni umsögn fræðslu- og menningarmálanefndar.
  2. Skólastjóri og aðstoðarskólastjóri leikskóla, að fenginni umsögn fræðslu- og menningarmálanefndar.
  3. Skólastjóri tónlistarskóla, að fenginni umsögn fræðslu- og menningarmálanefndar.
  4. Skrifstofustjóri.
  5. Tæknifræðingur/skipulags- og byggingarfulltrúi.
  6. Slökkviliðsstjóri.

 

3. gr.

Bæjarstjóri ræður aðra fasta starfsmenn en þá sem greinir í 2. gr. starfsreglna þessara, nema á annan veg kunni að vera mælt í lögum, reglugerðum eða reglum sem bæjarstjórn hefur sett, sbr. 62. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar.

 

Bæjarstjóra er heimilt að fela bæjarstjórn ráðningu starfsmanna skv. þessari grein, t.d. í þeim tilvikum ef bæjarstjóri er vanhæfur til ákvarðana um ráðningu.

 

Ef stofnuð er ný staða (fast starf) skal bæjarstjórn ákveða hvort um það fer skv. 2. eða 3. gr. starfsreglna þessara.

 

4. gr.

Bæjarstjóri ræður lausráðna starfsmenn eða felur öðrum starfsmönnum umboð til ráðningar slíkra starfsmanna eftir því sem við á hverju sinni. Heimilt er bæjarstjóra að fela þeim starfsmönnum sem nefndir eru í 2. gr. starfsreglna þessara umboð til lausráðningar starfsmanna.

 

5. gr.

Heimild til ráðningar starfsmanna takmarkast af lögum eins og þau kunna að hljóða hverju sinni, samþykktum bæjarstjórnar og gildandi fjárhagsáætlun (og/eða 3ja ára áætlunum) hverju sinni. Eigi skal ráðið í nýtt starf nema bæjarstjóri eða viðkomandi yfirmaður stofnunar, deildar eða fyrirtækis skili kostnaðaráætlun og greinargerð um starfið til bæjarstjórnar til samþykktar.

 

6. gr.

Að jafnaði skulu öll laus störf sem fastráðið er í hjá sveitarfélaginu og fyrirtækjum þess auglýst til umsóknar.

 

Auglýst skal á þann hátt eða á þeim stað að nái til sem flestra íbúa sveitarfélagsins eða þess hóps sem auglýsingu er sérstaklega beint að.

 

7. gr.

Sá sem fer með ráðningarvald skv. 2. – 4. gr. starfsreglna þessara skal leitast við að hafa samráð um ráðninguna við hlutaðeigandi yfirmenn þeirra stofnana, deilda eða fyrirtækja sem starfsmaður skal ráðinn til.

 

Ráðningarvaldi skv. 1. til 4. gr. starfsreglna þessara fylgir vald til veitingar áminninga og uppsagnar starfs í samræmi við lög, kjara- og starfssamninga hverju sinni.

 

8. gr.

Þeir sem með ráðningarvald fara skulu gæta persónulegs hlutleysis í hvívetna við ákvarðanir skv. reglum þessum. Þeir skulu gæta trúnaðar og þagmælsku um upplýsingar og vitneskju um persónulega hagi umsækjenda og starfsmanna sem þeir kunna að komast yfir í tengslum við starf sitt. Hið sama gildir um þá sem hafa umsagnarrétt við ráðningu starfsmanna. Um ákvarðanir þeirra fer að öðru leyti að lögum og gildandi kjara- og starfssamningum.

 

9. gr.

Gerðir skulu skriflegir ráðningarsamningar við alla fastráðna starfsmenn við upphaf starfs þeirra. Um innihald ráðningarsamnings fer skv. ,,Samkomulagi um form ráðningarsamninga og skyldu til að upplýsa starfsmenn um ráðningarkjör” sem samþykkt var 10. júní 1997 af Launanefnd sveitarfélaga og af hreppsráði Eyrarsveitar 1. júlí 1997.

 

10. gr.

Til að breyta starfsreglum þessum þarf samþykkt bæjarstjórnar Grundarfjarðar.

 

 

Starfsreglur þessar, sem settar eru með stoð í 61. og 62. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar nr. 93/2002, voru samþykktar af bæjarráði Grundarfjarðar hinn 29. apríl 2004 samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Grundarfjarðar 21. apríl 2004 og öðlast þar með gildi.

 

29. apríl 2004

Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri

Áskrift að fréttum
 
Gott að vita


             

 


 Senda fyrirspurn 



Svæðisgarður á Snæfellsnesi


Um Grundarfjörð

Grundapol á Íslandi

Strætó


Sorphirða


 Fundir bæjarstjórnar


Gjaldskrár

Eldri borgarar
 

Vefmyndavél

 

Gaman að skoða

 

 

 

Myndir frá 50 ára

sögu grunnskólans 

 

Myndabanki

 

Örnefnavefur

 


   

 

 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar