Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Fimmtudagur 20. júní 07:30
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Valmynd
Fundargerðir og fréttir
Samþykktir
Félagar
Bækur
Myndasafn
Örnefnaskrá
Hollvinir - fundargerðir / fréttir
6. mars 2007
Aðalfundur 2007
19. febrúar 2007
Aðalfundur Eyrbyggja
11. janúar 2007
80. Stjórnarfundur
5. desember 2006
79. Stjórnarfundur
, Samþykktir  Prenta síðu

Eyrbyggjar.

 

Samþykktir Eyrbyggja, hollvinasamtaka Grundarfjarðar
 
I. kafli
 
 Nafn og tilgangur
 
1.  gr.
Samtökin  heita  Eyrbyggjar, hollvinasamtök Grundarfjarðar.
Heimili þess og varnarþing er í Grundarfirði.
 
          Samtökin  eru frjáls félagasamtök einstaklinga, stofnana, samtaka og fyrirtækja.
 
2. gr.
Tilgangur samtakanna er:
 
          Að   vinna   að  eflingu  byggðar,  atvinnulífs  og  menningar  í
Grundarfirði og standa vörð um sögu  svæðisins.
 
3. gr. 
 Aðild að samtökunum:
 
     Aðild  að  samtökunum  er  frjáls  öllum sem vilja vinna að markmiðum félagsins.
 
Stjórn og stjórnarkosning
 
4.  gr.
Stjórn samtakanna skipa sjö menn er skulu kosnir úr hópi
félagsmanna til tveggja ára í senn, en þó skal kosið um þrjá stjórnarmenn, varamann og formann á hverju ári.  Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.  Tvo skoðunarmenn reikninga skal kjósa árlega
 
5.  gr.
Kjör  stjórnar  fer fram við atkvæðagreiðslu á aðalfundi og eru
allir félagsmenn kjörgengir til stjórnarsetu.
 
Aðalfundur
 
6.  gr.
Aðalfundur skal auglýstur á tryggilegan hátt.
 
7.  gr.
Aðalfund skal halda fyrir lok febrúarmánaðar ár hvert.  Takist ekki að ljúka aðalfundarstörfum á einum fundi, skal boða til framhaldsaðalfundar.
 
     1.   Stjórn   samtakanna   gefur  skýrslu  um  starfsemi  félagsins  á síðastliðnu ári.
 
     2. Reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
 
     3. Tekin ákvörðun um tillögur til lagabreytinga.
 
     4. Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
 
     5. Stjórnarkjör og kjör tveggja skoðunarmanna reikninga.
 
     6. Önnur mál.
 
Stjórnarfundir og stjórnarstörf
 
8.   gr.
Formaður  skal  boða  til  funda  og  gegna  öðrum  venjulegum
formannsstörfum. Varaformaður gegnir störfum formanns í forföllum
hans. Ritari skal halda gerðabók um stjórnarfundi.
Stjórnarfundir  eru  lögmætir,  ef  meirihluti  stjórnar mætir. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum.
 
Félagsfundir
 
9.  gr.
Félagsfundi skal boða svo oft sem þurfa þykir og er félagsstjórn
skylt að boða þá ef fjórðungur fullgildra félagsmanna krefjast þess og
tilgreina fundarefni.
 
10.  gr.
Fundum skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Ef ágreiningur
verður   um  fundarsköp,  úrskurðar  fundarstjóri,  en  skotið  getur  hann ágreiningsefni undir atkvæði fundarmanna.
Afl atkvæða ræður úrslitum mála á félagsfundum, nema þar sem öðru vísi kann að verða ákveðið í lögum þessum.
 
Ýmis ákvæði
 
11.  gr.
Komi fram tillaga um að leysa samtökin upp, verður hún eigi tekin
til greina nema hún sé studd hið minnsta 1/4 félagsmanna, og
skal  þá  höfð um hana allsherjaratkvæðagreiðsla. Tillagan telst því aðeins samþykkt, að hún hljóti 2/3 greiddra atkvæða.
Verði   samtökin   leyst   upp  skulu  gerðarbækur  þess  og  skjöl  afhent sveitarfélaginu til fullrar eignar og umráða.
 
 
12.  gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi, enda hafi tillögur þar
að  lútandi  borist  til  félagsstjórnar áður en aðalfundur er auglýstur og þeirra getið í fundarboði.  Á  aðalfundi  er heimilt að gera breytingartillögur við löglega fram komnar tillögur  til lagabreytinga, enda feli breytingartillögur ekki í sér óskyld efni við upprunalegu tillögurnar.  Til  að  lagabreyting nái fram að ganga verður hún að vera samþykkt með 2/3 greiddra atkvæða. Um leið og samþykkt er breyting á lögum skal ákveðið með fundarsamþykkt, hvenær breytingin
tekur gildi.
 
 
 
1. útgáfa samþykkta  samtakanna  voru
samþykkt á ársfundi Eyrbyggja í Grundarfirði 29. júlí 2000.
 
2. útáfa eins og hér er birt var samþykkt á ársfundi 27. júlí 2001, með viðbót um kjör skoðunarmanna reikninga.
 
 
 
 
 
 
Áskrift að fréttum
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2627282930311
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30123456
Júní 2013

Í dag

Skrá atburði, smelltu hér
Gaman að skoða

 

Vikublaðið Þeyr

 


 

 

 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar