|
|
 |
|
|
 |
Velkomin á ljósmyndasíðu Eyrbyggja
Smellið á valatriðin hér til hliðar og síðan litlu myndirnar til þess að sjá þær stærri.

Það er líka gaman að skoða
Myndasíðu Gaua
Ef einhver sér mynd af sjálfum sér, eða sér tengdum og er ósáttur eða ósátt við að myndin sé á veraldar-vefnum, hafið þá samband við Svenna í síma: 860-0720 eða tölvupóst í: eidi@simnet.is , eða Gaua í síma 438-6967 eða tölvupóst í: gaui@gauiella.is og við munum bregðast við skjótar en skugginn. Einnig er ekki alltaf á hreinu hjá okkur af hverjum einhverjar myndir eru og eru því annaðhvort röng nöfn við þær, eða spurningamerki, sem eru skilaboð til ykkar um að hafa samband ef þið vitið betur en við.
Komið endilega með myndirnar ykkar í skönnun og fáið þær skrifaðar á geisladisk og leyfið okkur að nota þær, sem á einhvern hátt tengjast okkar ástkæra byggðarlagi, hvort heldur er á þessari myndasíðu eða ljósmyndasýningunni Ískaldur veruleiki. Myndir sem eru birtar á þessari síðu eru flestar frumsýndar á Góðri stund í Grundarfirði (myndasýningunni Ískaldur veruleiki).
|
|
 |
|