Saumaklúbbar í Grundarfirði
Í Grundarfirði eru starfræktir að minnsta kosti 10 saumaklúbbar með 5-10 meðlimum hver. Klúbbarnir hittast misjafnlega oft en að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Tilgangur klúbbanna er misjafn, þó allir séu þeir kallaðir saumaklúbbar. Flestir klúbbanna hafa einhver nöfn og má t.d. nefna Nísku nálina. Sumir eru ósköp heiðarlegir og konurnar í þeim hittast til að sauma, prjóna, hekla og föndra, en kannski síðast en ekki síst til að fá hugmyndir hvor frá annarri. Elsti klúbburinn er orðinn rúmlega fjörutíu vetra, að ég held, en það er sammerkt með klúbbunum að þeir eru starfandi að vetri til, nokkurs konar ljós í skammdeginu.
Það má þó ekki gleyma veitingunum sem í boði eru í hverjum klúbbi og má nærri láta að næstum hver kona í Grundarfirði fari í hálfgildings fermingarveislu a.m.k. einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina.
Klúbbarnir eru þó ekki einungis kvennaklúbbar því makar fá að fljóta með annað slagið í ýmis ferðalög og skemmtanir sem klúbbarnir hafa tekið sér fyrir hendur. Má þar nefna ferðir í sumarbústaði, utanlandsferðir og síðast en ekki síst grillveislur og matarboð.
Meginmarkmið hvers saumaklúbbs er þó síðast en ekki síst sá að konur hittist eina kvöldstund og geri sér glaðan dag fjarri sínu dags daglega amstri.
Sólrún Guðjónsdóttir
|