Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Laugardagur 18. maí 22:42
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Valmynd
Bókasafn
Gerum eitthvað saman
Opið
Þjónusta og aðstaða
Safnkostur
Eyrbyggja
Saga bókasafnsins
Myndasafn
Information in English
Polski
Fréttir
Börn og unglingar
Tenglar
Eldri borgarar
Félags- og skólaþjónusta
Fyrirtæki í bænum
Grundarfjarðarkirkja
Heilbrigðiseftirlit
Heilsugæsla
Lögregla
Sorphirða og gámastöð
Sýslumaður Snæfellinga
SSV - þróun og ráðgjöf
Vinnumálastofnun
Þjónusta, Bókasafn, Information in English  Prenta síðu

Fréttir

Bókasafn Grundarfjarðar
Sími: 438-6425

Tölvupóstur: bokasafn hjá grundarfjordur.is

 

Nóvember 2011

Leitir.is - nýi leitarvefurinn

Nú geturm við farið í leitir allan ársins hring. Beta.gegnir.is sem margir hafa nýtt sér undanfarið ár hefur fengið nýtt nafn. Leitir.is er leitarvefur sem leitar samtímis í Gegni sem er samskrá velflestra bókasafna í landinu, gagnasöfnum með stafrænu íslensku efni ásamt erlendum áskriftum að stafrænu vísindaefni í Landsaðgangi, Hvar.is. Til hamingju Ísland!

 

Ágúst 2011

Vetrartími hefst

Vegna uppfærslu Gegnis bókaskrárkerfisins frestum við vetrartímanum til mánudagsins 22. ágúst. Þá verður opið kl. 15-18. Sumartímanum lýkur nú á fimmtudegi 18. ágúst kl. 13-18.
Meðan Gegnir liggur niðri er hægt að fá upplýsingar um bókakost landsmanna á www.beta.gegnir.is sem er ný leitargátt fyrir bókasöfn landsins, háskólabókasöfnin, Tímarit,is, Bækur.is, Hvar.is og Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Athugið að ekki er hægt að sjá staðsetningu gagna inni á bókasöfnum tengdum Gegni fyrr en eftir uppfærslu sem lýkur væntanlega fimmtudaginn 18. ágúst.

 

Júní 2011

Bókaverðlaun barnanna 2011

Bókaverðlaun barnanna voru afhent í níunda sinn í aðalsafni Borgarbókasafns sunnudaginn 15. maí., en verðlaunabækurnar eru valdar af börnum á aldrinum 6-12 ára.
Verðlaunin hlutu Þorgrímur Þráinsson fyrir Ertu guð afi? og Helgi Jónsson sem þýddi Dagbók Kidda klaufa eftir Jeff Kinney.

 

Á Bókasafni Grundarfjarðar var dregið úr innsendum seðlum og reyndust Kanínan sem fékk ALDREI nóg og Gauragangur vinsælastar en í flokki erlendra bóka Stóra Disney matreiðslubókin.
Þær heppnu voru María Margrét Káradóttir úr 1.-3. bekk og Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir úr 4.-6. bekk. Þeim var afhentur glaðningur á skólaslitum grunnskólans í byrjun júní.

 

 

Maí 2011

Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla

Á Bókasafni Grundarfjarðar eru þrír glerskápar sem geyma sýnishorn af munum af Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla. Þessar vikurnar eru ýmsir mundir sem sengjast handverki frá gamalli tíð.

 

Meðal þeirra er þessi mynd af dúllum úr eigu gamals Snæfellings. Dúllurnar eru gerðar með nál. Fáir þekkja þessa aðferð en þeir sem geta upplýst okkur um hana mega hafa samband við bókasafnið eða Norska húsið.

 

 

Smellið á myndina til að fá stærri mynd

 

Apríl 2011

Samkeppnin Bækur að baki kvikmyndum. Guðrún, Marín og Leó skiluðu inn lista með 101 titli sem til er á Bókasafni Grundarfjarðar. Verðlaunin eru inneign á Miði.is með þökkum fyrir þátttökuna.  

 

Apríl 2011

Stór mánuður í heimi bókasafna á Íslandi.

Bókasafnadagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn þann 14. apríl. Í Bókasafni Grundarfjarðar var Samkeppnin Bækur að baki kvikmyndum og komu fram nokkrir tugir bóka tengdar leikverkum.

Boðið var upp á Bókamerki dagsins og Hressingu. Viðtöl og greinar birtust í útvarpi, sjónvarpi og dagblöðum. Sjá meira á Facebook.

Listi birtur yfir 100 bestu íslensku bækurnar að mati starfsfólks bókasafna. Hvað áttu margar? Krossaðu við þær sem þú hefur lesið. 

Heilsurækt á bókasafninu You Tube

Dagskrá á öðrum bókasöfnum

Sjá meira í fréttum undir Daglegt líf  13. apríl 2011.

 

 

11. mars 2011

Bókasafnið skráir söguna

Bókasöfnum ber að safna, geyma og miðla notendum almennum upplýsingum um bæjarfélagið og þjónustu þess og sögu. Skrá um efni tengt Eyrarsveit er á vefsíðu bókasafnsins. Nýlega var hún uppfærð og bætt inn i hana skrá yfir greinar í Skessuhorni 2009-2011, Morgunblaðinu og öðrum blöðum sem til hefur náðst. Kynnið ykkur skrána og aðrar sem finnast á vef Bókasafns Grundarfjarðar.
 

Skessuhorn og Vikublaðið Þeyr frá upphafi og Bæjarblaðið Jökull (2010- ) eru varðveitt á bókasafninu.
  

 

18. febrúar 2011 11:03
Bókasafnið hvalir og síld

Bækur á bókasafninu og fróðleikur á vefnum. Sjá meira hér neðar.   

Hvalavefur RÚV

Helstu nytjastofnar hjá Hafrannsóknarstofnun.

Hvalir á Wikipediu. Fjölbreyttar upplýsingar og latnest heiti tegundanna. Íslenskar og erlendar heimildir með hverri grein.

MyFishMap.com. Myndir og fróðleikur um fiska heimsins. Heiti þeirra á ýmsum tungumálum. Tölfræði og landakort. 

Á Gegni.is má finna um 200 bækur og önnur gögn um hvali, hvalveiðar og hvalaskoðun, þar af nokkrar bækur á Bókasafni Grundarfjarðar. Prófið Ítarleit og leitið á eigin safni neðst á síðunni. Kveðja, Sunna.

 

7. febrúar 2011 12:58
Bókasafnið og efnisskrár

Á vefsíðu Bókasafns Grundarfjarðar eru nokkrar efnisskrár sem vert er að vekja athygli á. Meðal þeirra er:

Nýuppfærður listi í Efnisskrá Eyrarsveitar. Sjá Bókasafn > Safnkostur.

Safn vefsíðna með aðgangi að textum og bókmenntum og hljóðbókum.

Í bókaskránni Gegni.is má finna hvað er til á Bókasafni Grundarfjarðar og hér er listi yfir það efni sem er ekki til skráð í Gegni, sérstaklega erlendar bókmenntir.
 

Þetta efni og annað af ýmsu tagi hefur verið valið úr bókagjöfum sem velunnarar hafa fært bókasafnu að gjöf gegnum árin sem. Það er enn og aftur þakkað.

 

Síðustu ár hefur bókasafnið ekki getað keypt inn eins mikið af bókmenntum og fyrri ár. Því höfum við fengið slatta af bókum í millisafnaláni. Þær eru hér svona tvo mánuði og um að gera að kíkja af og til á úrvalið og grípa gæsina meðan hún gefst. Sama á við um pólskar bækur frá Bókasafni Reykjanesbæjar.

 

Að lokum er rétt að benda á nýtt og vaxandi hlutverk bókasafna í nútíma samfélagi sem er upplýsingaþjónusta og aðstoð við öflun upplýsinga.

 

Athugið: Það er útbreiddur misskilningur að ekki megi trufla starfsmenn bókasafna með fyrirspurnum. Þvert á móti þá er það æskilegt því þetta er jú vinnan okkar.
 

 

8. - 11. nóv. 2010

Norræna bókasafnavikan 

Lesefni á ensku, norsku og íslensku.

 

Maí 2010

Bókaverðlaun barnanna voru veitt á Sumardaginn fyrsta.

Á Bókasafni Grundarfjarðar var dregið úr innsendum seðlum og reyndust Núll núll 9, Ég og þú og Gæsahúð - Týndi drengurinn vinsælastar en í flokki erlendra bóka Stórskemmtilegu stelpubókin og Skúli skelfir og jólin.

 

Viðurkenningu fyrir þátttöku í 1.-3. bekk hlaut Sigurður Heiðar Valgeirsson og Sandra Ósk Jóhannsdóttir í 4.-6. bekk. Þeim var færð bókargjöf á skólaslitum grunnskólans þann 2. júní 2010.
Öllum þátttakendum eru færðar þakkir fyrir að velja uppáhaldsbækur vetrarins.

Sjáið plakatið í skólanum og á bókasafninu.

 

Ágúst í upphafi skóla 

Bókasafn Reykjanesbæjar sendir okkur bækur á pólsku. Hægt er að koma á bókasafnið og panta bækur eða senda tölvupóst með óskum um höfunda eða titla. Látið pólska vini vita.

Sjá bókalista. (27. feb. 2009)

 

Sjá upplýsingar um hljóðbækur í þar næstu klausu.

 

Fréttatilkynning 30. júní 2009.

Yfir sumartímann er tilvalið að heimsækja bókasafnið milli kl. eitt og sex á fimmtudögum (13-18). Barnadeildin er fallega myndskreytt með bókum og hljóðbókum og tímaritahornið er með aðstöðu til að fá sér kaffi, te eða svalandi vatn. Það er sjálfsagt að hafa með sér nesti og velkomið að setjast út á svalirnar í góðu veðri. Útsýnið er óviðjafnanlegt.
Kl. þrjú (15:00) opnar svo sundlaugin og í lokin má koma við í kirkjunni og koma kyrrð á hugann eftir indælan dag. 

 

Hljóðbækur af bókasafninu og upptökur af RÚV eru tilvaldar í sumarfríið, hvort sem er í bílinn eða sóðbaðið.

Hlusta.is -  Áskrift en boðið verður upp á að sækja efnið á bókasafnið í haust eins og hverja aðra bók.
RÚV - Hlaðvarp - Öllum opið.

Hljóðbækur á vef Námsgagnastofununar, grunnskólanemendum að kostnaðarlausu.

Það er óþarft að vinna aftur það sem aðrir gera vel. Hér er samantekt hjá KRAFTI á erlendu efni í hlaðvarpi/podcasti (audio/video). Tilvalið að kynna sér um leið starf stuðningsfélags þeirra ungmenna sem greinst hafa með krabbamein.  

Á bókasafninu er internet opið og hægt að fá upplýsingar um ýmislegt annað en bækur. Við komumst þó ekki með tærnar þar sem Sögumiðstöðin hefur hælana en þar er upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, gestastofa og lítið kaffihús.

 

Maí 2009

Bókaverðlaun barnanna

Lesendur á aldrinum 6-12 ára hafa valið bestu barnabækurnar af þeim sem komu út árið 2008. Úrslitin voru kynnt á Sumardaginn fyrsta í Borgarbókasafninu. Hjá okkur var dregið úr innsendum seðlum og veitt verðlaun á skólaslitadaginn. Álfheiður Ólafsdóttir og Alma Jenný Arnarsdóttir hlutu bókargjöf í sínum aldursflokkum.

 

Til lukku stelpur. Og krakkar! Takk fyrir að taka þátt. Sunna.

 

Desember 2008

Á nýju ári, 2009, breytast opnunartímar bókasafnsins í samræmi við aðhaldsaðgerðir bæjarstjórnar. Lokað verður á föstudögum og eftir kl. 18:00 á fimmtudögum. Við vonum að styttri þjónustutími komi sér ekki illa og hvetjum viðskiptavini til að nota tölvupóst vegna erinda sem þurfa sérstaka skoðun eða þola lítilsháttar bið.

 

Frátekin stund handa þér:

Fjarnemar í heimabyggð eftir kl. 16:30 á þriðjudögum.

Samverustund fjölskyldunnar kl. 16:30-18:00 á miðvikudögum.

Stund stórfjölskyldunnar frá kl. 16:30-18:00 á fimmtudögum.

 

Nóvember 2008

Sú ósk hefur komið fram á fundi með fræðslu- og menningarmálanefnd að ákveðin stund verði frátekin fyrir samverustund fjölskyldunnar. Þá geti foreldrar komið með börn sín og spjallað saman og lesið upp fyrir þau sögur. Þessi stund verður framvegis á miðvikudögum frá kl. 16:30.

 

Hvað þá með afa og ömmu og frændfólkið? Því er velkomið að koma líka en við höfum ákveðið að taka líka frá tímann á fimmtudögum þegar opið er til kl. átta um kvöldið fyrir þau. Við köllum það Stund stórfjölskyldunnar og stormum á bókasafnið frá kl. 18:00. (Ath. breyttan tíma kl. 16:30-18:00) Það er sjálfsagt að hafa með sér samlokur því við höfum heitt á könnunni og djús til reiðu.

 

Til að lífga upp á námið í heimabyggð tökum við frá seinnipartinn á þriðjudögum fyrir fjarnemana okkar. Þá er hægt að hittast og skiptast á reynslusögum og jafnvel bókum. Tilsögn í upplýsinga- og heimildaleit er alltaf til reiðu.

 

Í stuttu máli: 

Fjarnemar í heimabyggð eftir kl. 16:30 á þriðjudögum.

Samverustund fjölskyldunnar kl. 16:30-18:00 á miðvikudögum.

Stund stórfjölskyldunnar frá kl. 18:00-20:00 á fimmtudögum.

 

Nóvember 2008

Ástin til Norðurlandanna

Næsti viðburður bókasafnsins er Norræna bókasafnavikan sem hefst 10. nóvember með upplestri við kertaljós og er þemað ástin til Norðurlandanna. Það á vel við nú þegar Færeyingar rétta okkur hjálparhönd og Norðmenn vilja tryggja samstöðu okkar. Dagskráin hefst kl. sex, kl. 18:00.

Hin finnska Eeva Kilpi hefur heillað lesendur sína með hárfínum húmor og áhuga á örlögum mannanna. Hún fæddist í Karelíuhéraðinu árið 1928 og uppruna hennar gætir mjög í skrifum hennar. Hún hefur skrifað bæði skáldsögur, smásögur og ljóð. Þegar hún var 11 ára gömul hertóku Sovétmenn Karelíu og fjölskylda hennar flýði heimaslóðirnar og hafnaði loks í Helsinki. Eeva hefur samið sérstakan texta fyrir upplesturinn í ár.

Guðrún Helgadóttir er aðalhöfundur texta fyrir börn með söguna „Ástarsaga úr fjöllunum". Fyrir börn og unglinga verður lesið úr sögum Yrsu Sigurðardóttur.

 

Október 2008

Bangsadagurinn heldur áfram á mánudaginn

Fjölmörg börn og bangsar heimsóttu bókasafnið föstudaginn 24. okt. Þau tóku bangsana sína og fleiri persónur með. Alltaf komu fleiri og fleiri og þegar draugasögurnar á bókasafninu byrjuðu var enginn tími til að lesa ljúfa bangsasögu í tilefni dagsins. Fjöldinn varð svo mikill að Hjartabangsinn Björn L. fór í felur og kúldraðist ofan í djúpum barnastól allan tímann. Þannig varð hann að sitja undir hræðilegri sögu um skötumóður sem kemur upp úr sjónum til að taka litla báta með sjómönnum ofan í djúpið og annarri um afturgöngu á Hornströndum. Lítil stýri sem ekki gátu setið undir slíkum ófögnuði fengu að fara fyrr í djús og pönnukökur en aumingja Björn L. komst ekki. Þegar sögurnar voru búnar voru allar pönnukökurnar líka búnar svo að margir drifu sig í draugahúsið í Eden.

 

Til að bæta Birni hjartabangsa upp þessar hremmingar bauð  bókasafnið börnum og böngsum að koma mánudaginn 27. október og hitta hann milli kl. þrjú og sex.

Börnin gátu valið sér bókamerki og bangsa-dúkkulísur til að lita og tekið áfram þátt í getraun sem lauk kl. fimm.

 

Sólveig Ásta og Karen Líf

 

Aldís fékk Grétu vinkonu sína til að hjálpa sér að velja sína bók

Þrjár stúlkur komust næst því að giska á hve margir bangsar voru í glerkrukkunni og munaði 1-2 á réttri tölu sem var 318 hlaupbangsar. Aldís Ásgeirsdóttir, Sólveig Ásta Bergvinsdóttir og Karen Líf Gunnarsdóttir völdu sér hver sína bókina úr jólabókaflóði ársins og voru ánægðar með heppnina.

Ýmislegt um Bangsadaginn á Bókasafni Ísafjarðar.

 

 

Ágúst 2008

Nýtt barnahorn.

Barnadeild bókasafnsins tók nokkrum stakkaskiptum í júlí. Hillum var ýtt til og búið til skot með dýnu, litlu borði og stólum umkringt ævintýralegu landslagi undir stjörnubjörtum himni. Uppröðun á öðrum hillum var breytt svo að safnið er nú opnara og aðgengilegra. Kaffihornið fékk andlitslyftingu, þar eru hægindastólar og kaffiborð með tímarit í seilingarfjarlægð.

Heiðurinn af breytingunum á Helga Soffía Gunnarsdóttir, brottfluttur Grundfirðingur, dóttir Gunnars Jóhannessonar og Sunnu Njálsdóttur. Helga Soffía útskrifaðist sem klæðskeri frá Iðnskóla Reykjavíkur árið 2000 og er með sköpunargáfuna í góðu lagi. Hún nýtti sér reynslu sína af starfi á leikskóla í Reykjavík og reglulegum heimsóknum á hverfisbókasafnið með fimm ára dóttur sína. Það hafði verið lengi í bígerð að breyta barnadeildinni og stækka unglingadeildina. Það var því með mikilli ánægju sem tillögum Helgu að breytingum á safninu var hrint í framkvæmd í vikunni fyrir Á góðri stund. Nýir vendir sópa best og vil ég þakka Helgu Soffíu fyrir vel unnið verk og vona að íbúum Grundarfjarðarbæjar líki vel. Unglingadeildin bíður enn um sinn en allar tillögur eru vel þegnar því glöggt er gests augað.

 

 

Maí 2008.

Bókaverðlaun barnanna.
Bókaverðlaunin voru afhent í Borgarbókasafninu á sumardaginn fyrsta. Þau hlutu Hrund Þórsdóttir höfundur Loforðsins og Snorri Hergill Kristjánsson þýðandi Skólasöngleiksins, High school musical.
Á Bókasafni Grundarfjarðar var góð þátttaka í 3.-5. bekk og var dregið úr innsendum seðlum. Bókaverðlaun í 1.-3. bekk fékk Ragnar Þór Jepsen og úr 4.-6. bekk Guðrún Ösp Ólafsdóttir og voru þau afhent á skólaslitum grunnskólans 30. maí 2008.
Vinsælustu bækurnar í Grundarfirði þetta árið voru þessar:
• Gæsahúð 12, Jólagjöfin
• Kafteinn Ofurbrók og kamraborgargaurarnir frá andhverfuheiminum
• Nærbrók Skúla skelfis
• Bert og kalda stríðið


,,Ljóð unga fólksins 2008“

Dómnefnd í samkeppninni Ljóð unga fólksins hefur nú lokið störfum og liggja úrslit í 1.-3. sæti fyrir. Höfundar koma víða að af landinu. Engin ljóð frá Grundarfirði voru valin í ljóðabók sem gefin verður út í sumar. 19 börn sem skiluðu inn ljóði í Bókasafni Grundarfjarðar fengu viðurkenningarskjal og á skólaslitum las Aldís Ásgeirsdóttir upp ljóð eftir Berg Einar, Hallgerði Kolbrúnu og Sigþór Daða.


 

Mars 2008.

Í mars fóru fram í íslenskum bókasöfnum verðlaunsamkeppni um slagorð fyrir bókasöfn, atkvæðagreiðsla um bestu barnabókina að mati barna 6-12 ára og ljóðasamkeppnin Ljóð unga fólksins.

 

Verið er að lengja lánstíma á ákveðnum safngögnum upp í tvo mánuði s.s. erlendum bókum og kiljum frá Ás útgáfunni. Meira seinna.

 

Nokkur slatti af hljóðbókum bættist við bókasafnið í mars. Sjá myndir.

 

 

Feb. 2008.

Á hverjum vetri koma elstu börn Leikskólans Sólvöllum í sex heimsóknir á bókasafnið. Þau fá lánaðar bækur og læra að skila næst. Oftast koma þau gangandi og láta hvorki rigningu né snjó tefja sig nema í verstu veðrum. Þau voru hvött til að minna foreldra, systkini eða afa og ömmu á að heimsækja bókasafnið með sér það sem eftir er vetrar.

Elstu börn Leikskólans luku bókasafnsnámskeiði sínu með því að hlusta á Sunnu lesa sögu um kúna sem hvarf.

 

 

Eldri fréttir 2005-2007.

 

Áskrift að fréttum
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Maí 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fréttir
17. maí 2013
Vinnuskóli sumarið 2013
17. maí 2013
Vorskóli
15. maí 2013
Félagsvist
14. maí 2013
Spennandi störf í upplýsingamiðstöð ferðamanna
 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar