Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Miðvikudagur 22. maí 19:03
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Maí 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fundargerðir
30.apríl 2013
160. fundur bæjarstjórnar
29.apríl 2013
15. fundur hafnarstjórnar
26.apríl 2013
434. fundur bæjarráðs
24.apríl 2013
109. fundur skólanefndar
Spurningin

Ert þú sátt/ur við úrslit alþingiskosninganna?

Nei

Alveg sama

Vill ekki svara

Stjórnsýsla - Nýlegt safn
Daglegt líf - Nýlegt safn
Afsláttur fasteignagjalda  Prenta síðu

Reglur um afslátt af fasteignaskatti

 

 

1. gr.

Til að geta átt rétt á afslætti af fasteignaskatti samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar hverju sinni, þarf eftirtöldum skilyrðum að vera fullnægt:

 

a.  Viðkomandi elli- og örorkulífeyrisþegar verða að eiga lögheimili í Grundarfjarðarbæ og séu þinglýstir eigendur viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68 gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignarskatt.

 

b.  Umsækjandi sé 75% öryrki eða 67 ára eða eldri.  Ellilífeyrisþegar geta fyrst átt rétt á afslætti hafi þeir orðið 67 ára á næsta ári á undan álagningarári.  Þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári eiga rétt á hlutfallslegri lækkun frá því að örorkumat tók gildi.

 

c.  Umsækjandi búi sjálfur í íbúðarhúsnæðinu og hafi ekki af því leigutekjur.  Heimilt er að víkja frá þessu skilyrði, þegar umsækjandi dvelur á stofnun, á því ári sem viðkomandi fer á stofnun og næsta ár á eftir, enda hafi viðkomandi ekki leigutekjur af húsnæðinu og/eða að fasteignin sé ekki nýtt af öðrum til íbúðar.

 

d.  Sé umsækjandi í óvígðri sambúð gilda sömu reglur og um hjón sé að ræða.

 

e.  Þegar um hjón eða sambúðaraðila er að ræða nægir að annað hjóna eða sambúðaraðila fullnægi því skilyrði að vera elli- eða örorkulífeyrisþegi.

 

f.  Falli annar aðilinn, sem getið er í staflið d, frá, þá á sá eftirlifandi rétt á því að njóta afsláttar hjóna, eða sambúðaraðila, út árið sem fráfallið átti sér stað á, óski hann þess.

 

g. Verði slit á hjónabandi eða sambúð þeirra einstaklinga sem getið er í staflið d, þá eiga aðilar máls rétt á öðru tveggja, frá og með þeim tíma sem lögskilnaður er skráður eða sambúðarslit skráð:

 

1. að njóta óbreytts afsláttar út álagningarárið óski þeir þess.

2. að vera meðhöndlaðir sem einstaklingar frá og með þeim tíma óski þeir þess, enda geti þeir með fullnægjandi hætti sýnt aðgreindar sértekjur sínar vegna ársins á undan sbr. gr. 2 og 3.

 

2. gr.

Varðandi tekjuviðmiðanir gilda þær tekjur sem eru stofn til útreiknings tekjuskatts, útsvars og fjármagnstekjuskatts, eins og þessar tekjur voru á næsta ári á undan álagningarárinu. Miðað er við sameignlegar tekjur hjóna og samskattaðra sambýlisaðila.


3. gr.

Umsækjendur skulu leggja fram umsókn á tilskildum eyðublöðum, ásamt endurriti af skattframtali staðfestu af skattstjóra og örorkumatsvottorð, ef við á.

Reglur þessar eru settar með heimild í lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995,  5. gr. 3. mgr.

  

Afsláttartafla árið 2008:

 

Tekjur einstaklinga 2007

Afsláttur

Frá

Til

100%

0

1.626.499

75%

1.626.500

1.819.699

50%

1.819.700

2.001.299

25%

2.001.300

2.194.499

 

Tekjur hjóna 2007

Afsláttur

Frá

Til

100%

0

2.883.299

75%

2.883.300

3.076.499

50%

3.076.500

3.258.199

25%

3.258.200

3.451.299

 

Hámarksafsláttur árið 2008 er kr. 51.000.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Grundarfjarðar 10. desember 2007.

Áskrift að fréttum
 
Gott að vita


             

 


 Senda fyrirspurn 



Svæðisgarður á Snæfellsnesi


Um Grundarfjörð

Grundapol á Íslandi

Strætó


Sorphirða


 Fundir bæjarstjórnar


Gjaldskrár

Eldri borgarar
 

Vefmyndavél

 

Gaman að skoða

 

 

 

Myndir frá 50 ára

sögu grunnskólans 

 

Myndabanki

 

Örnefnavefur

 


   

 

 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar