Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Þriðjudagur 18. júní 08:23
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Valmynd
Grundarfjörður
Sögumiðstöð
Afþreying
Gisting og matur
Handverk
Samgöngur-Busses
Vesturlandsvefurinn
Ferðamenn, Sögumiðstöð  Prenta síðu

Eyrbyggja - sögumiðstöð

 

 

Eyrbyggja – Sögumiðstöð er sjálfseignarstofnun, stofnuð árið 2003.

Tilgangur hennar er skv. skipulagsskrá, að koma upp og starfrækja í Grundarfirði sögumiðstöð og sögugarð fyrir sagnaarf Snæfellinga, er tengir saman þá aðila sem vinna að sögutengdum verkefnum. Tilgangurinn er einnig að kynna sögu svæðisins og menningararf og efla vitund almennings um hann. Mikil áhersla er lögð á samvinnu þeirra aðila sem starfa á vettvangi menningar og ferðaþjónustu og að auka samlegðina sem fá má úr framlagi margra stakra aðila.

Sögumiðstöðin er starfrækt í eigin húsnæði í hjarta bæjarins. Þar fer fram eftirfarandi starfsemi:

 

  • Safnið, þar sem sífellt bætast við sýningar, m.a. undir fyrirsögninni ,,Hvernig nútíminn varð til".
  • Þórðarbúð, sem er nýjasta sýningardeild safnsins en þar eru börn og fullorðnir fræddir um sögu leikfanganna, frá legg og skel til nútíma. Safnið er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
  • Ljósmyndasafn Bærings Cecilssonar, gjöf til Grundfirðinga 2003 (safnið hýst, unnið úr ljósmyndum o.fl., mikið verk enn óunnið).
  • Sagnavökurýmiss konar, tengdar verkefni um endurreisn sagnahefðar á Íslandi.
  • Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn á sumrin, gestastofa og lítið kaffihús.
  • Bæringsstofa, salur til ýmiss konar listviðburða og fundahalda.

 

 

 

Miðstöðin hefur verið í mikilli uppbyggingu frá stofnun, en leggur nú áherslu á að sinna menningar- og fræðsluhlutverki sínu sem tengist sögu og arfi Snæfellinga í samræmi við markmið og hlutverk miðstöðvarinnar.

 

Árið 2007 var gerður  samstarfssamningur Sögumiðstöðvar og Grundarfjarðar­bæjar til 6 ára, um menningarhlutverk og þjónustu Sögumiðstöðvar gegn föstu, árlegu fjárframlagi bæjarins.  

 

Stefna Sögumiðstöðvar

Skipulagsskrá

 

Verkefni Sögumiðstöðvar

 

Unnið er að uppbyggingu sögugarðs á Grundarkampi, sem er eitt stærri verkefna miðstöðvarinnar. 

 

Sagnamiðstöð Íslands

Undanfarin ár hefur Eyrbyggja – Sögumiðstöð tekið þátt í ýmsum verkefnum er tengjast sagnalist. Einstaklingar á hennar vegum hafa haldið sagnanámskeið, hvatt til stofnunar sagnahópa víða um land og skapað tengsl við önnur lönd á þessu sviði. Nú í haust var haldin fyrsta alþjóðlega sagnahátíðin á vegum miðstöðvarinnar og stefnt er að áframhaldandi starfsemi á árinu 2009.

The Scottish Storytelling Centreí Edinborg er helsta fyrirmynd Sagnamiðstöðvar Íslands. Áformuð verkefni Sagnamiðstöðvarinnar felast í megindráttum í endurvinnslu þjóðsagna og endurreisn sagnahefðar. Stofnuninnni er ætlað að vera viðbót við og leita samvinnu við aðrar stofnanir sem starfa að líkum verkefnum, en engin þeirra hefur þó nákvæmlega sömu nálgun og hér er lagt upp með.

Á vegum stjórnar Eyrbyggju – Sögumiðstöðvar er unnið að undirbúningi og ýmsir kostir eru í skoðun varðandi starfsemi og uppbyggingu Sagnamiðstöðvar Íslands, m.a. um hentuga samvinnu við aðrar stofnanir í Grundarfirði og víðar, jafnvel möguleika á samrekstri eða sameiginlegri aðstöðu.  

 

Áskrift að fréttum
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2627282930311
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30123456
Júní 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Vefmyndavél

 

 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar