Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Þriðjudagur 21. maí 00:57
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Valmynd
Ungmennafélagið
Stjórn - ráð
Tímatafla UMFG
Golfklúbburinn Vestarr
Hesteigendafélagið
Skotfélagið Skotgrund
Gönguferðir
HSH
Hópleikurinn
Snæfellsnessamstarf
Íþróttir, Ungmennafélagið  Prenta síðu

Ungmennafélag Grundarfjarðar

 

Heimasíða UMFG

 

Stjórn og nefndir UMFG
 

Ungmennafélag Eyrarsveitar var stofnað 10 júlí 1933.  Í fyrstu stjórn voru: Gunnar Kristjánsson, Grund, formaður, Ásmundur Ásmundsson, Hömrum og Halldór E. Sigurðsson, Suður-bár.

 

Á fyrsta ári var gefið út blaðið Dagbrún, að sjálfsögðu handskrifað og lesið upp á félagsfundum.  Fyrsti ritstjóri var Karl Kristjánsson, Grund.  Þetta blað kom út reglulega allt til 1942.  Einnig var eitt af fyrstu verkum félagsins að koma upp bókasafni.  Það gekk mjög vel, því að 1929 voru til 200 bækur.  Þetta bókasafn var starfrækt á vegum ungmennafélagsins til 1956, er hreppurinn yfirtók bókasafnið.

 

Árið 1943, þegar félagið var 10 ára gáfu nokkrir félagsmenn silfurskjöld er ber nafnið Steinþórsskjöldur, í minningu um kappann Steinþór Þorláksson á Eyri (Hallbjarnareyri).  Um þennan skjöld hefur síðan verið keppt á hverju ári í frjálsum íþróttum.  Fyrsta keppnin fór fram 1943 og varð þá hlutskarpastur Einar Skarphéðinsson, Hjarðarbóli.  Allir fyrstu kappleikirnir fóru fram á Hallbjarnareyri í Eyrarodda. 

 

Það sem mest háði starfsemi félagsins var húsleysi.  Hafist var handa við að byggja samkomuhús árið 1944.  Ungmennafélagið lagði til helming á móti hreppsfélaginu.  Hlutur ungmennafélagsins var að vísu eingöngu dagsverk.  Árið 1946 var húsið langt komið og byrjaði þá félagið á íþróttavelli, sem var staðsettur við samkomuhúsið.

Áskrift að fréttum
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Maí 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fréttir frá UMFG
 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar