Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Miðvikudagur 22. maí 11:54
  Forsíða   Ferðamenn   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Valmynd
Ungmennafélagið
Golfklúbburinn Vestarr
Hesteigendafélagið
Skotfélagið Skotgrund
Gönguferðir
HSH
Hópleikurinn
Snæfellsnessamstarf
Íþróttir, Gönguferðir  Prenta síðu

Gönguleiðir í Grundarfirði og nágrenni

 

 

Klakkur - Klakkstjörn

Ágætt er að hefja gönguna við Bárarfoss. Ganga síðan upp á Bárarháls eftir vegslóða sem liggur um hann.Þegar komið er til móts við Bárarvatn ytra er beygt til hægri upp melölduna sem heitir Hrísfell með stefnu á Klakkinn austanverðan þar sem hann heitir Urðarhaus. Á vinstri hönd verður þá Draugagil. Efst er klettagirðing með einstigi sem ekki er fýsilegt að fara um fyrir þá sem eru lofthræddir en þá er einnig hægt að slá sér nær draugagilinu og fara upp grasræmu ofan þess og þar er einnig ágætt að fara niður aftur.

 

Klakkurinn er hæstur um 380 metrar en ofan í hann vestanvert við Urðarhausinn er skál með tjörn. Á henni er sagt að óskasteinar fljóti á jónsmessunótt. Skemmtilegt er að ganga fram á Klakkshausinn sem er í vestur lengst mót Grundarfirði og horfa þaðan út á Breiðafjörðinn.

 

Ganga á Klakk er í meðallagi erfið en hversu erfið hún er ræðst þó af ferðahraða. Tekur hátt í þrjá klukkutíma með góðu stoppi.
 
 

Umhverfis Kirkjufell

Ágætt er að hefja gönguna við túnfótinn á Kirkjufelli og ganga síðan ef fallið er út eftir Kirkjufellsvaðli rangsælis um fellið. Fjölmargt er að skoða bæði í fjörunni og í náttúrunni sérstaklega er þetta skemmtileg ganga fyrir börn.

 

Fyrra nesið sem komið er að heitir Melnes og síðan kemur að Króarnesi og verður þá ekki lengur gengið eftir sandinum þótt stórstraumsfjara sé.Er þá gengið upp á Króarnesið næst fellinu og þar birtist vitinn að Hnausum. Næst er komið að bæjarrústum á Búðum og síðan gengið eftir bakkanum þar til Hálsvaðall tekur við og ef fallið er útaf honum má ganga eftir sandinum en annars nær fellinu uns hringnum er lokað.

 

Ganga þessi er tilvalinn fjölskylduganga og tekur sem slík um þrjá klukkutíma en hægt að fara hana á mun skemmri tíma.
 
 
 

Tröllaháls 

Þessa göngu er hægt að hefja við Slýá á Eyrarbotni og ganga þarf út frá því að vera sóttur í áfangastað við brúna yfir Mjósund inni næsta botni sem er Árnabotn. Ef maður ætlar ekki að ganga sömu leið til baka. Gengið er upp Eyrarbotn um Selflóa inn að Hrauntungum innst á botninum. Þaðan er haldið yfir lækjarsprænu til vinstri upp á Tröllahálsinn sem er gömul reiðleið og sést víða móta fyrir slóðanum.

 

Á leiðinni upp á hálsinn er Axarhamar á hægri hönd en Gjafakollur á þá vinstri. Í Axarhamri ofarlega á að vera hellir sem sagt er að tröllkona ein hafi hafst við í og eftir henni heiti hálsinn Tröllaháls. Í þennan helli mun enginn mennskur maður hafa komist. Reiðgötunni er fylgt yfir Tröllahálsinn og niður Hálskinnar uns komið er niður á Árnabotn. Þar var eitt sinn býlið Fjarðarhorn og þegar myndin um Nonna og Manna var gerð var reistur bær á þessum slóðum.

 

Gengið er út með Straumhlíð vinstramegin við Hraunsfjörð niður að Mjósundabrú. Þar má sjá mannvirki hafbeitarstöðvar sem reist var af Silfurlaxi á níunda áratugnum en áform um arðvænlega atvinnustarfsemi gengu ekki eftir. Ferðin tekur um þrjár og hálfa klukkustund og er ekki erfið.

 

Fjölmargar gönguleiðir eru einnig að finna og vefnum ganga.is en það má sjá mikið að skemmtilegum gönguleiðum á Snæfellsnesi
 

Áskrift að fréttum
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Maí 2013

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fréttir frá UMFG
 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar