|
|
Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 05:33 af www.grundarfjordur.is |
|
Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is | |
19. október 2004 15:34 |
Slökkvilið Grundarfjarðar aðstoðar Slökkvilið Ólafsvíkur við stórbruna |
Gríðarlegt tjón varð í eldsvoða á bænum Knerri í Snæfellsbæ í gærkvöld og brunnu hundruð fjár inni. Eldurinn var tilkynntur klukkan 19.55 til lögreglunnar í Snæfellsbæ og var Slökkvilið Ólafsvíkurog Grundarfjarðar kvatt á vettvang. Aðgengi að vatni var mjög takmarkað og þurfti að sækja það um 1 km leið að næsta bæ. Ljóst var um klukkan 22.30 að ekki tækist að bjarga fjárhúsi, vélageymslu og hlöðu en áhersla var lögð á að bjarga íbúðarhúsinu. |
Í fjárhúsinu voru um 600 fjár, einkum lömb sem átti að leiða til slátrunar og brunnu þau inni. Í vélageymslunni voru nýjar vélar og tæki sem urðu eldinum að bráð. Eldur logaði í heyi og varð bálið gríðarlegt að sögn varðstjóra. Engan mann sakaði þó. Aðstæður til slökkvistarfs voru mjög slæmar vegna veðurs og réðst illa við eldinn. Vindhviður fóru í 50 metra á sekúndu og börðust um 20-30 slökkviliðsmenn við eldinn fram eftir kvöldi. Ekki liggur fyrir hvernig eldurinn kviknaði en hann kom upp í hlöðunni. Slökkviliðsmenn hættu störfum upp úr hádegi í dag, en lögregla mun vakta svæðið áfram. Frétt byggð á frétt mbl.is |