|
|
Prentað föstudaginn 24. maí kl. 10:34 af www.grundarfjordur.is |
|
Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is | |
19. desember 2005 13:41 | ||||
Skippers D'Islande - siglingakeppni | ||||
Eins og fram hefur komið á bæjarvefnum er í gangi undirbúningur fyrir siglingakeppnina Skippers D´Islande 2006, en keppnisleiðin er: Paimpol - Reykjavík - Grundarfjörður – Paimpol. Áhugamenn standa að keppninni, m.a. siglingaklúbburinn í Paimpol á Bretagne-skaga í Frakklandi. Siglingaklúbburinn Brokey í Reykjavík leggur þeim lið með undirbúning hér heima.
| ||||
Keppnin verður haldin í þriðja sinn sumarið 2006 og er Grundarfjörður í fyrsta sinn sérstakur áfangastaður á keppnisleiðinni. Er það vel við hæfi, enda er Paimpol vinabær Grundarfjarðar. Í byrjun desember var haldin stór bátasýning í París, "45 Salon Nautique de Paris". Á blaðamannafundi sem haldinn var á bás Bretagne-skaga á sýningunni var keppnin kynnt formlega. Fjölmiðlafólk, keppendur og aðstandendur keppninnar fjölmenntu til fundarins og upplýst var að nú þegar hefðu 18 skútur verið skráðar í keppnina. Ræst verður frá Paimpol þann 24. júní 2006, en áætlað að keppendur verði í Grundarfirði í kringum 9. júlí og dvelji hér í 3-4 daga. Með fylgir hópur Frakka og er búist við að á annað hundrað manns heimsæki okkur.
Faxaflóahafnir sf., Grundarfjarðabær og Grundarfjarðarhöfn, ásamt Reykjavíkurborg styrkja keppnina og auk þess hefur stuðnings verið leitað hjá fyrirtækjum í Frakklandi og á Íslandi. Ber þar ekki síst að nefna Icelandair sem stutt hefur þetta framtak vel frá upphafi. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri var viðstödd fjölmiðlafund Skippers d´Islande í París þann 6. desember sl. og flutti þar stutt ávarp. Ágúst Ágústsson markaðsstjóri Faxaflóahafna sf. var ennfremur ,,fulltrúi Íslands” á sýningunni.
| ||||