|
|
Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 12:45 af www.grundarfjordur.is |
|
Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is | |
3. janúar 2008 09:19 |
Þrettándabrenna |
Þrettándabrenna verður haldin n.k. sunnudag inn í Kolgrafarfirði á svipuðum slóðum og hún var haldin fyrir ári síðan. Vekjum athygli á breyttum tíma á brennunni en áætlað er að búið verði að kveikja í klukkan 17.30. Björgunarsveitin mun vera með flugeldasýningu og möguleiki er á að álfar, tröll og jafnvel Grýla og fleira skemmtilegt söngfólk mæti á staðinn. Einnig á að bjóða upp á heitt kakó og munu foreldrar barna á miðstigi sjá um það líkt og áður. Minnum því foreldra á að koma með einn kakóbrúsa fyrir sitt barn og koma með á staðinn. Vonandi sjáum við sem flesta og fáum gott veður. Með bestu kveðju, Stjórn foreldrafélags grunnskólans. |
|