|
|
Prentað laugardaginn 18. maí kl. 11:23 af www.grundarfjordur.is |
|
Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is | |
13. júlí 2009 14:57 |
Fundur um þjóðlendumál á Snæfellsnesi verður haldinn í Grundarfirði 14. júlí |
Héraðsnefnd Snæfellinga boðar til fundar um þjóðlendumálin á Snæfellsnesi þriðjudaginn 14. júlí 2009 kl. 17.30. Fundurinn verður haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Á fundinn mætir Óðinn Sigþórsson frá Búnaðarsamtökum Vesturlands og fer yfir helstu atriði þessara mála. Allir sem hafa hagsmuni í þessum málaflokki svo sem landeigendur og sveitarstjórnarfólk eru hvött til þess að mæta og kynna sér stöðuna. |
|