Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 13:44 af www.grundarfjordur.is

Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is

Grundarfjörður

 

 

 

Grundarfjarðarbær er miðsvæðis á norðanverðu Snæfellsnesi, og skartar glæstri náttúru. Bærinn er innst í firði, umlukinn tignarlegum fjöllum og ber þar af hið sérstæða og fallega Kirkjufell.

 

 

 

 

 

Þó að bærinn eigi enn mikið undir sjávarútvegi er atvinnulíf fjölbreytt og sóknarfæri eru á mörgum sviðum. Bærinn er einkar fallegur og hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi. Hér lifum við og störfum í sátt við náttúruna og hefur Grundarfjörður, ásamt öðrum sveitarfélögum á Snæfellsnesi, hlotið hina alþjóðlegu  Earthcheck umhverfisvottun.

 

 

 

 

Menningar- og félagslíf blómstrar í Grundarfirði og tónlist skipar stóran sess í lífi Grundfirðinga. Í Grundarfirði er gott jafnvægi náttúru og mannlífs sem skilar sér til þeirra sem sækja fjörðinn heim. Hér er gott að búa og að ala upp börn.

 

 

 

 

Í Grundarfirði...

 

 

 

 

Viltu vita meira?

 

Hringdu þá í síma 430-8500, frá 10:00 - 14:00, eða sendu tölvupóst á grundarfjordur@grundarfjordur.is.