Fræðslu- og menningarmálanefnd
Fundargerð
82. fundur fræðslu- og menningarmálanefndar Grundarfjarðarbæjar, haldinn í Leikskólanum Sólvöllum 08. desember 2008, kl. 16:00.
Mætt voru: Sigurður A. Jónsson, formaður, Jóhanna H. Halldórsdóttir, Ásthildur Erlingsdóttir, Sólrún Guðjónsdóttir og Johanna Van Schalkwyk.
Gengið var til dagskrár:
1. Úrdráttur úr fundargerð 343. Fundar bæjarráðs. þ. 7/11 2008, afgreiðsla á fundargerð 81. Fundar nefndarinnar þ.3/11 2008.
Samþykkt samhljóða.
2. Kosning varaformanns fræðslu- og menningarmálanefndar.
Ásthildur Erlingsdóttir bauð sig ein fram og var kjörin varaformaður með öllum greiddum atkvæðum
3. Leikskólastjóri Leikskólans Sólvalla mætir á fundinn til
viðræðna um málefni skólans.
Skýrsla frá leikskólastjóra fyrir skólaárið 2008. Í vor voru 47 börn á leikskólanum og hefur starfið gengið vel og kennslan haldist með hefðbundnum hætti miðað við undanfarin ár ár. Á þessu ári var haldið áfram að taka inn börn frá 12 mán. aldri og hefur gengið vel með það starf. Félags- og skólaþjónustan koma einnig að starfi leiksólans , í því formi að talmeinafræðingur og sálfræðingur koma ef þörf þykir og er það mjög mikilvægt fyrir leikskólan að hafa aðgang að slíkri þjónustu.
Viðhald leikskóla: umsjónarmaður fasteigna hefur unnið gott starf við að huga að því sem laga þarf, en einhver verkefnalisti er enn til staðar ásamt athugasemdum sem heilbrigðiseftirlitið skráði í sinni síðustu heimsókn. Nefndin vill ítreka að bætt verði úr þessu sem allra fyrst.
Heimasíða leikskólans þarfnast endurnýjunar og kom fram tillaga um að heimasíður fyrir Grundarfjarðarbæ séu samrýmdar. Nefndin styður þá hugmynd að athugað verði hvort einhver fáist í það verk og þá með hvaða hætti það yrði framkvæmt.
4. Fulltrúi foreldrafélags leikskólans mætir á fundinn kl. 16:45.
Erna Sigurðardóttir mætti fyrir hönd foreldrafélags leikskólans í heimsókn , til skrafs og ráðagerða. Hún skýrði frá starfi foreldrafélagsins.
5. Fulltrúi Foreldrafélags grunnskólans mætir á fundinn kl. 17:05.
Dagbjört Lína Kristjánssdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir mættu á fundinn og sögðu frá starfi foreldrafélags grunnskólans.
6. Fulltrúi nemendaráðs grunnskólans mætir á fundinn kl. 17:30.
Nemendur á efsta stigi grunnskólans, þau:Marta, Baldur, Anna Júnía og Særós Ósk sem eru í ungmennaráði grunnskólans komu á fundinn. (Marta er einnig í nemendaráði) Þau spjölluðu um hvernig þeim líkaði fjarnámið í Dönsku og almennt um kennsluna í framhaldsskólanum, ásamt því að fræða okkur um hvað seta í þessum nefndum fæli í sér. Sérstakar óskir komu frá þeim um að salta mætti einnig gangstéttar í bæjarfélaginu okkar og að tilfinnanlega vantaði æfingarhúsnæði fyrir alla hæfileikaríku tónlistarmennina okkar. Von um að hægt yrði að æfa körfubolta var einnig ofarlega á listanum.
7. Fundarboð, námskeið og ráðstefnur:
Ekkert fyrirliggjandi.
8. Til kynningar:
Ekkert fyrirliggjandi.
9. Önnur mál
Fleira ekki gert og fundi slitið kl: 18:20
|