Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 18:51 af www.grundarfjordur.is

Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is


Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Hafnarstjórn, fundur nr. 18
Dags. 12. Janúar 2010

 

Hafnarstjórn Grundarfjarðarhafnar

 

Fundargerð

 

18. fundur hafnarstjórnar, kjörtímabilið 2006-2010, haldinn þriðjudaginn 12. janúar 2010, kl. 08.30, á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar.

 

Mætt eru: Runólfur Guðmundsson formaður, Sigurður Ólafur Þorvarðarson og Björg Ágústsdóttir.  Að auki sitja fundinn Hafsteinn Garðarsson hafnarvörður og Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, hafnarstjóri, sem ritar fundargerð.

 

Formaður setti fundinn kl. 08.30 og bauð Sigurð Ólaf Þorvarðarson velkominn á  sinn fyrsta fund í hafnarstjórn á þessu kjörtímabili.

 

Þetta gerðist:

 

1.      Gjaldskrá Grundarfjarðarhafnar 2010:

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Grundarfjarðarhöfn árið 2010.  Liðir í gjaldskránni breytast misjafnlega.  Með tillögunni er samanburðartafla við gjaldskrár nokkurra hafna.

 

Formaður þakkaði Hafsteini fyrir mikla og góða vinnu við uppsetningu á tillögu að gjaldskrá og samanburði við aðrar hafnir.

 

Fjárhagsáætlun Grundarfjarðarhafnar fyrir árið 2010 lögð fram til kynningar.

 

Eftir umræður voru lagðar til smávægilegar breytingar á framlagðri tillögu sem voru samþykktar samhljóða.  Breyting á aflagjaldi verður skoðuð sérstaklega síðar á árinu í ljósi   tekjuþróunar hafnarinnar næstu mánuði.

 

         Tillagan samþykkt samhljóða með áorðnum breytingum.

 

2.      Þátttaka í ferðakaupstefnu í Miami:

Lögð fram tillaga um að Grundarfjarðarhöfn taki þátt í ferðakaupstefnu í Miami með sama hætti og undanfarin ár.  Samhliða er lagt til að Shelagh Smith verði ráðin til þess að fara á ferðakaupstefnuna og kynna kosti Grundarfjarðarhafnar.

 

Samþykkt samhljóða.

 

3.      Frá Björgu Ágústsdóttur:

         Björg Ágústsdóttir, tölvupóstur frá 2/12 2009 - um bætt rekstrarumhverfi og mögulegan sparnað í rekstri ásamt aukinni umhverfisvitund til þess að auka aðdráttarafl hafna.  Björg fór yfir þessa punkta sem hún hefur tekið saman, m.a. um aðgerðir í dönskum höfnum til umhverfisbóta og markaðssetningar.

 

         Björg ræddi og skýrði það sem hún hefur skoðað í þróunarvinnu hafna t.d. í Danmörku varðandi umhverfismál og markaðssetningu.

 

         Rætt var um ýmsa þætti sem virka þungt í umhverfisþáttum hafna svo sem gæði og vottun vatns sem selt er til skipa.

 

         Rætt var um gerð heimasíðu fyrir höfnina.  Hafnarstjórn samþykkir samhljóða að stefnt verði að opnun heimasíðu fyrir höfnina um mánaðamótin febrúar - mars n.k.

 

         Lögð er áhersla á að í markaðssetningu fyrir höfnina verði lögð áhersla á hreinleika og góða þjónustu sem til staðar er og að allar slíkar upplýsingar verði látnar koma vel fram á væntanlegri heimasíðu.

 

4.       Upplýsingar til Siglingastofnunar vegna Samgönguáætlunar fyrir árin 2009 - 2012:

Lagt fram bréf frá Siglingastofnun, dagsett 15/12 2009 varðandi Samgönguáætlun 2009 - 2012.  Fram kemur að nauðsynlegt sé að gera „viðskiptaáætlanir“ til stuðnings beiðnum um fjárveitingar til viðhalds- og endurbótaverkefna í höfnum.

 

Lagðar fram viðskiptaáætlanir sem Hafsteinn Garðarsson hefur gert vegna tveggja verkefna sem til stendur að vinna að í Grundarfjarðarhöfn á framangreindu tímabili.

 

Til kynningar.

 

5.       Landaður afli í Grundarfjarðarhöfn 2009:

Lögð fram samantekt frá Hafsteini Garðarssyni um landaðan afla í Grundarfjarðarhöfn mánuðina janúar til nóvember árið 2009.  Samtals var 14.616 tonnum af blönduðum afla landað í höfninni á þessu tímabili.

 

Til kynningar.

 

6.      Til kynningar:

         6.1     Stjórn Hafnasambands Íslands, 324. fundur 2/11 2009.

         6.2     Stjórn Cruise Iceland, fundur 11/11 2009.

         6.3     Stjórn Cruise Iceland, fundur 26/11 2009.

         6.4     Verkbeiðni til Alta ráðgjafarstofu vegna vinnu við                 

                   undirbúning að stofnun

                   landamærastöðvar í Grundarfjarðarhöfn lögð fram til  

                   kynningar.

 

7.      Formaður lagði fram tillögu um að hafin verði markviss kynning á þjónustu og aðstöðu Grundarfjarðarhafnar gagnvart útgerðum á Íslandi.  Markmiðið verði að auka landanir skipa. 

 

Haft verður samráð við þjónustuaðila og kynnt hversu víðtæka þjónustu er unnt að fá fyrir fiskveiðiskip í Grundarfirði.  Leitað verði til markaðsfulltrúa Grundarfjarðarbæjar um uppsetningu og form á kynningarbréfi sem sent verði út eins og fljótt og við verður komið.

 

 

Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 10.30.

 

 

Björg Ágústsdóttir                              

Runólfur Guðmundsson

Guðmundur Ingi Gunnlaugsson                               

Sigurður Ólafur Þorvarðarson.

Hafsteinn Garðarsson


Til baka