Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 23:08 af www.grundarfjordur.is

Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is


Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Hafnarstjórn, fundur nr. 1
Dags. 23. Júní 2010

 

Hafnarstjórn Grundarfjarðarhafnar

 

Fundargerð

 

24. fundur hafnarstjórnar, haldinn fimmtudaginn 23. júní 2010, kl. 13.00, á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar.

 

Mætt eru:  Sigurður Ólafur Þorvarðarson, Jón Frímann Eiríksson og Ásgeir Valdimarsson kjörnir aðalmenn í hafnarstjórn.  Eftirtaldir varamenn í hafnarstjórn sitja fundinn:  Sólrún Guðjónsdóttir, Gísli Ólafsson og Valdís Ásgeirsdóttir.  Einnig situr fundinn undir 1. - 3. lið, Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar.   Eftirtaldir starfsmenn sitja fundinn:  Hafsteinn Garðarsson, hafnarvörður og Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, hafnarstjóri, sem ritar fundargerð.

 

Gengið var til dagskrár, þetta gerðist:

 

1. Kosning formanns hafnarstjórnar:

    Lagt er til að Sigurður Ólafur Þorvarðarson verði formaður     

    hafnarstjórnar.

    Samþykkt samhljóða.

         

 

2. Kosning varaformanns og ritara:

    Lagt er til að Jón Frímann Eiríksson verði varaformaður hafnarstjórnar.

    Samþykkt samhljóða.

 

    Lagt er til að bæjarstjóri/hafnarstjóri sitji fundi hafnarstjórnar og riti

    fundargerð.

    Samþykkt samhljóða.

 

 

3. Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar:

Sigurborg þakkaði nefndafólki fyrir að taka að sér mikilvægt starf fyrir samfélagið og bauð þau velkomin til starfa.  Sigurborg lagði áherslu á að hafnarstjórnin og aðrar nefndir mynduðu sér sýn til fjögurra ára og að unnið verði eftir mörkuðu ferli.  Hafnarstjórn þarf að leggja fram slíka sýn og/eða áhersluatriði fyrir 25. ágúst n.k.  Sigurborg minnti á að nauðsynlegt væri að allir gengju í takt og að upplýsingastreymi væri gott á milli hafnarstjórnar og bæjarstjórnar.  Sigurborg kallaði eftir ábendingum sem kynnu að vera varðandi vinnuna framundan.

 

Hafsteinn benti á að þegar væru í gangi umsóknir um framlög úr Hafnabótasjóði á Samgönguáætlun til 2014.  Hafsteinn lagði i áherslu á að til næstu ára væri áríðandi að horfa til viðhaldsverkefna, markaðssetningar hafnarinnar og lækkun skulda.

 

Sigurborg vék af fundi kl. 13.18.

 

4. Staða viðhalds- og endurnýjunarverkefna við höfnina:

Hafsteinn Garðarsson skýrir frá helstu verkefnum sem unnið hefur verið að við höfnina á síðustu mánuðum.  Viðhaldsverkefni eru talsverð í höfninni á þessu ári, helstu eru málun, fríholt og fleira.

 

Hafsteinn skýrði frá tjónum sem hlotist hafa af ákeyrslum bíla eða annarra vélknúinna tækja á búnað á bryggjum undanfarnar vikur.

 

Sett verður upp læst hlið að flotbryggju í innri höfninni.

 

Ýmis verkefni bíða svo sem klæðning vigtarskúrs, flotbryggja í innri höfninni, þekja á Norðurgarði og fleira.

 

Til kynningar.

 

 

5. Komur skemmtiferðaskipa sumarið 2010:

    Hafsteinn Garðarsson, hafnarvörður, leggur fram lista yfir komur

    skemmtiferðaskipa sumarið 2010 og skýrir frá þeim þætti í rekstri

    hafnarinnar.

 

Fyrir sumarið 2011 eru þegar bókuð 12 skip sem er meira en verið hefur á sama tíma undanfarin ár.

 

Til kynningar.

 

 

6. Icelandic Fisheries Exhibition 22. - 24/9 2011 - boð um þátttöku  og 

    sýningaraðstöðu:

    Lagður fram tölvupóstur frá Marianne Rasmussen-Couling f.h. Icelandi

    Fisheries Exhibition um Sjávarútvegssýninguna sem haldin verður 22. til

    24. september 2011.  Farið er fram á þátttöku Grundarfjarðarhafnar í

    sýningunni og boðin fram sýningaraðstaða.

 

Til kynningar.

 

 

7. Fundarboð:

    Engin fundarboð fyrirliggjandi.

 

                  

8. Til kynningar:

8.1 Cruise Iceland 15/6 2010 - fundargerð aðalfundar 20/5 2010.

 

 

9. Önnur mál:

9.1 Þátttaka í ferðakaupstefnu í Cannes í Frakklandi haustið 2010.  Hafsteinn leggur til að Grundarfjarðarhöfn taki þátt í þessari ferðakaupstefnu eins og allar aðrar hafnir sem taka á móti skemmtiferðaskipum ætla að gera.  Í Cannes mæta m.a. útgerðaraðilar evrópsku skipafélaganna sem ekki mættu til Miami.  Lagt er til að ShelaghSmith fari af hálfu Grundarfjarðarhafnar til Cannes og haldi með því áfram kynningarverkefnum sem hún hefur unnið að síðustu ár.

 

 

Kostnaður við kynningarverkefni á fjárhagsáætlun er nú kr. 1.500.000 og lagt er til að sá liður hækki í kr. 2.300.000 vegna þessarar viðbótar og fleiri verkefna og verði vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2010. 

Samþykkt samhljóða.

 

 

9.2     Hafnasambandsþing verður haldið í september á þessu ári og að þessu sinni á Snæfellsnesi.  Hafnirnar á Snæfellsnesi verða gestgjafar og munu að einhverju leyti kynna sína aðstöðu.  Grundarfjarðarhöfn þarf að ákveða og undirbúa sína þátttöku.

 

Til kynningar.

 

 

 

Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 14.12.

 

                     

Sigurður Ólafur Þorvarðarson                                

Jón Frímann Eiríksson

Guðmundur Ingi Gunnlaugsson                               

Ásgeir Valdimarsson

Hafsteinn Garðarsson                                               

Sólrún Guðjónsdóttir

Gísli Ólafsson                                                           

Valdís Ásgeirsdóttir

 

 


Til baka