Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 02:18 af www.grundarfjordur.is

Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is


Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Hafnarstjórn, fundur nr. 6
Dags. 24. Febrúar 2011

Hafnarstjórn Grundarfjarðarhafnar

 

Fundargerð

 

6. fundur hafnarstjórnar Grundarfjarðar kjörtímabilið 2010-2014,

haldinn fimmtudaginn 24. febrúar 2011, kl. 17:30 á bæjarskrifstofunni.

 

Mættir voru: Sigurður Ólafur Þorvarðarson, formaður, Ásgeir Valdimarsson og Jón Frímann Eiríksson. Auk þess sátu fundinn Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri og Björn Steinar Pálmason, bæjarstjóri sem ritaði fundargerð.

 

Gengið var til dagskrár:

 

1.       Fundargerðir til kynningar:

1.1      Cruise Iceland, stjórnarfundur 03.02.2011.

 

2.       Hafnarframkvæmdir 2011-2014.

2.1      Rætt var um ástand smábátabryggju sem er tréflotsbryggja sem er fest við stauravirkið við Suðurgarð. Hafnarstjóri hefur beint því til Siglingastofnunar að framkvæmd við smábátabryggju komist á samgönguáætlun 2011-2014.

 

Hafnarstjóra falið að vinna áfram að málinu og leggja fyrir hafnarstjórn.

 

2.2      Endurbygging efsta hluta Norðurgarðs.

Verkið er áætlun Siglingstofnunar vegna ársins 2011.

Samþykkt að beina því til Siglingastofnunar að færa verkefnið til ársins 2013 eins og fram kemur í tillögu að samgönguáætlun 2011-2014 og nýta fjármagn sem áætlað er til steypuviðgerða á kerum, til uppbyggingu á smábátaaðstöðu samkv. lið 2.1.

 

2.3      Lenging Norðurgarðs.

Hafnarstjóra falið að beina því til Siglingastofnunar að lenging Norðurgarðs, fram af púða sem dælt var undir lengingu 2002, komist á samgönguáætlun 2011-2014.

 

2.4      Norðurgarður: Samskeyti við lengingu frá 2002.

Hafnarstjóri kynnti framvindu verksins.

 

2.5      Norðurgarður: Göt á stálþili.

Göt eru komin á stálþil á u.þ.b. 12 metra kafla sem byggt var 1982.

Eftirlitsmenn Siglingastofnunar eru væntanlegir til að meta skemmdir og væntanlegar framkvæmdir.

 

Hafnarstjóra falið að óska eftir fundi með forstöðumönnum Siglingastofnunar varðandi ofangreinda liði.

 

 

3.       Starfsmannamál.

Hafsteinn Garðarsson vék af fundi undir þessum lið.

3.1      Ráðningarsamningur hafnarstjóra lagður fram til kynningar.

3.2      Launauppgjör.

Bæjarstjóri lagði fram launauppgjör sem vísað var til endurskoðunar fjárhagsáætlunar hafnarinnar.

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 18:50.


Til baka