Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 06:03 af www.grundarfjordur.is

Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is


Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Menningar-og tómstundanefnd, fundur nr. 59
Dags. 6. Júlí 2011

Menningar – og tómstundanefnd Grundarfjarðarbæjar

 

Fundargerð

 

59. fundur menningar – og tómstundanefndar Grundarfjarðar, haldinn miðvikudaginn 6. júlí 2011, kl. 16:30, á bæjarskrifstofu Grundarfjarðar.

 

Mætt eru: Þorbjörg Guðmundsdóttir, formaður, Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir og Þórdís Anna Guðmundsdóttir. Að auki sat fundinn Eyþór Björnsson, skrifstofustjóri, er ritaði fundargerð.

 

Ennfremur sat Baldur Orri Rafnsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar Á góðri stund fundinn undir lið þrjú.

 

Formaður bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár.

 

Dagskrá:

 

1.            Rýnifundur um framkvæmd 17. júní hátíðarinnar.

               Rætt hvernig tiltókst með framkvæmd 17. júní.

 

2.            Útnefning verðlaunahafa Helgrinduverðlaunanna.

               Útnefning handhafa Helgrinduverðlaunanna verður kynnt

               laugardaginn 23. júlí 2011.

 

3.            Framkvæmdastjóri hátíðarinnar Á góðri stund gerir

               grein fyrir undirbúningi.

               Formaður bauð Baldur Orra Rafnsson, framkvæmdastjóra

               hátíðarinnar velkominn á fundinn.

 

               Baldur fór yfir dagskránna og almennt um undirbúninginn.

               Ennfremur rædd fyrirkomulag gæslu og forvarnamál.

 

               Nefndin lýsir ánægju með frábært starf.

 

4.            Önnur mál.

               Ekkert fyrirliggjandi undir öðrum málum.

 

 

Fundargerð upplesin og samþykkt.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:50

 

Þorbjörg Guðmundsdóttir

Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir

Þórdís Anna Guðmundsdóttir

Eyþór Björnsson

 


Til baka