126. fundur
umhverfisnefnd Grundarfjarðar
haldinn Bæjarskrifstofa Grundarfjarðar,
miðvikudaginn 6. júlí 2011 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Ólafur Tryggvason, Ingi Hans Jónsson, Dóra Aðalsteinsdóttir, Jón Pétur
Pétursson, Gústav Alex Gústafsson,
Fundargerð ritaði: Smári Björnsson , byggingafulltrúi
Dagskrá:
1. 1107009 - Skerðingsstaðir lýsing vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi Grundarfjarðar dreifbýli 2003 - 2015.
Lögð er fram lýsing vegna aðalskipulagbreytingar við Skerðingsstaði í
samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
Umhverfisnefnd Grundarfjarðar samþykkir framlagða lýsingu fyrir
aðalskipulagsbreytingu Grundarfjarðar 2003 - 2015 dreifbýli Skerðingsstaðatil kynningar og umsagnar með vísan til 1.mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt að vísa lýsingunni til umsagnar Skipulagsstofnunar.
2. 1107010 - Fákafell hesthúsasvæði lýsing vegna fyrirhugaðra breytinga á aðlskipulagi Grundarfjarðar 2003 - 2015.
Lögð er fram lýsing vegna aðalskipulagbreytingar við Fákafell hesthúsasvæði
í samræmi við 1.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
Óskað er eftir samþykkti til að hefja vinnu við aðalskipulagsbreytingu fyrir
Fákafell hesthúsasvæði. Samkvæmt meðfylgjandi tillögu uppdrætti.
Umhverfisnefnd Grundarfjarðar samþykkir framlagða lýsingu fyrir
aðalskipulagsbreytingu Grundarfjarðar 2003 - 2015 Fákafell til kynningar ogumsagnar með vísan til 1.mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt að vísa lýsingunni til umsagnar Skipulagsstofnunar.
3. 1105014 - Nesvegur 17 byggingarleyfisumsókn.
Þorgrímur Kolbeinsson kt. 080585-2769 sækir um leyfi til að setja glugga á
norðurvegg iðnaðarhúsnæðis að Nesvegi 17. Einnig óskar umsækjandi eftir
að meðfylgjandi teikningar af húsnæði verði samþykktar.
Umhverfisnefnd Grundarfjarðar samþykkir erindið þegar borist hafa samþykkimeðeigenda að Nesvegi 17 fyrir breytigunni. Erindið sé samkvæmt reglugerð.
4. 1107008 - Framkvæmdaleyfisumsókn hafnarframkvæmda við
suðurhöfn.
Hafnarstjóri Grundarfjarðar óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir fyrirhugaðar
framkvæmdir við smábátahöfn við suðurhöfn samkvæmt meðfylgjandi
uppdrætti. Framkvæmdin felst í dýpkun á ca 2700 m2 svæði, uppfylling,
landmótun og ný flotbryggja.
Umhverfisnefnd Grundarfjarðar samþykkir framkvæmdaleyfisumsókn við
smábátahöfn við suðurhöfn.
5. 1106016 - Nesveg 6 - 8, stöðuleyfisumsókn.
Gísli Ólafsson sækir um stöðuleyfi fyrir 10 feta aðstöðugám fyrir hönd Kamski ehf kt 5810060550 við Nesveg 6 - 8, neðanverðu.
Umhverfisnefnd Grundarfjarðar samþykkir útgefið stöðuleyfi.
6. 1107011 - Hrafnkelsstaðir Urðunarstaður.
Hrafnkelsstaðir starfsleyfi, óskað er eftir afstöðu nefndarinnar um
framtíðarstefnu losunarstaðar við Hrafnkelsstaði. Starfsleyfið rennur út í
desember 2012.
Umhverfisnefnd Grundarfjarðar samþykkir að urðunarstaðurinn við
Hrafnkelsstaði verði einungis nýttur sem losunarstaður fyrir lífrænan úrgang. Urðunarstaðurinn verði lagfærður og hreinsaður af öllum málmum og timbri.
7. 1107015 - Grundargata 17 fyrirspurn um stækkun á húsi.
Grundargata 17, Óformlega fyrirspurn um stækkun á húsi til vesturs.
Umhverfisnefnd Grundarfjarðar var kynnt málið og tók vel í hugmyndirnar.
Byggingafulltrúa falið að óska eftir frekari gögnum um málið. Þegar endanleg gögn hafa borist byggingarfulltrúa hefur hann heimild til að gefa út byggingaleyfi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. |