Bæjarstjórn
Fundargerð
149. fundur bæjarstjórnar Grundarfjarðar,
haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar, fimmtudaginn 10. maí 2012, kl. 16:30.
Mætt: Sigurborg Kr. Hannesdóttir (SKH), Ásthildur E. Erlingsdóttir (ÁEE), Eyþór Garðarsson (EG), Gísli Ólafsson (GÓ), Rósa Guðmundsdóttir (RG), Þórður Á. Magnússon (ÞÁM) og Þórey Jónsdóttir (ÞJ).
Að auki sátu fundinn Björn Steinar Pálmason (BSP), bæjarstjóri og Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS), skrifstofustjóri, sem ritaði fundargerð. Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi og Haukur Þorsteinsson frá Deloitte hf. sátu fundinn undir liðum þrjú og fjögur.
Bæjarstjórn Grundarfjarðar minntist gengins Grundfirðings. Hafsteinn Ólafsson lést 30. apríl sl. á 83. aldursári. Hafsteinn var búsettur á Dvalarheimilinu Fellaskjóli. Hann átti síðasta hluta æviskeiðsins hér í Grundarfirði og á hér fjölskyldu.
Fundarmenn risu úr sætum.
Bæjarstjórn bauð nýjan Grundfirðing velkominn í heiminn, dreng fæddan 2. maí sl. son Guðrúnar Hrannar Hjartardóttur og Ragnars Smára Guðmundssonar. Drengurinn hefur fengið nafnið Gunnar Smári.
Fundarmenn fögnuðu með lófataki.
Forseti óskaði eftir afbrigði frá útsendri dagskrá þannig að lið 1.2., 104. fundur skólanefndar yrði bætt við útsenda dagskrá.
Samþykkt samhljóða.
Gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til samþykktar:
1.1 66. fundur menningar- og tómstundanefndar, 02.05.2012. Fundargerð í átta liðum.
Liður 5. Ljósmyndasamkeppni.
Bæjarstjórn fagnar tillögu menningar- og tómstundanefndar um ljósmyndasamkeppni og felur nefndinni framkvæmd og útfærslu, enda rúmist hún innan fjárhagsáætlunar ársins.
Fundargerð borin upp í heild sinni og samþykkt samhljóða.
1.2 104. fundur skólanefndar, 09.05.2012. Fundargerð í tveimur liðum.
Liður 1. Starf aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Grundarfjarðar.
Til máls tóku: SKH, ÁEE, BSP og ÞÁM.
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Helgu Guðrúnu Guðjónsdóttur um starf aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Grundarfjarðar.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt samhljóða.
2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna til kynningar:
2.1 Stofnfundargerð Þróunarfélags Snæfellinga ehf., stofnskrá og samþykktir.
2.2 Fundargerð framhaldsstofnfundar Þróunarfélags Snæfellinga ehf., 30.03.2012. Fundargerð í tveimur liðum.
Til máls tóku: SKH, GÓ og ÞÁM.
2.3 124. fundur Breiðafjarðarnefndar, 02.03.2012. Fundargerð í sex liðum.
Til máls tóku: SKH, EG, ÞÁM, GÓ
Vegna hugmynda um að tilkynna Breiðafjörð inn á skrá OSPAR-samningsins um verndarsvæði í hafi leggur bæjarstjórn áherslu á mikilvægi upplýsingastreymis af hálfu umhverfisráðuneytis og að aðkoma sveitarfélaga við Breiðafjörð að málinu verði tryggð.
Samþykkt samhljóða.
2.4 Minnispunktar frá 8. fundi framkvæmdaráðs, 09.05.2012.
Til máls tóku: SKH og BSP.
2.5 796. stjórnarfundur Sambands ísl. sveitarfélaga, 27.04.2012. Fundargerð í 38 liðum.
3. Ársreikningur 2011, seinni umræða.
Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi og Haukur Þorsteinsson hjá Deloitte hf. fóru yfir og skýrðu ársreikninga sjóða og samstæðu Grundarfjarðarbæjar, sem lagðir eru fram til síðari umræðu.
Helstu niðurstöður í rekstrar- og efnahagsreikningi eru (í þúsundum króna):
|
Rekstrarreikningur |
|
|
|
|
|
Tekjur |
|
|
Skatttekjur |
515.918 |
|
Ýmsar tekjur |
208.832 |
|
Heildartekjur |
724.750 |
|
|
|
|
Gjöld |
|
|
Laun og launatengd gjöld |
321.471 |
|
Annar rekstrarkostnaður |
285.175 |
|
Afskriftir |
45.714 |
|
Fjármagnsgjöld |
-48.587 |
|
Heildargjöld |
603.773 |
|
|
|
|
Rekstrarafkoma |
120.975 |
|
|
|
|
Efnahagsreikningur |
|
|
|
|
|
Eignir |
|
|
Fastafjármunir |
1.563.624 |
|
Veltufjármunir |
95.161 |
|
Eignir samtals |
1.658.785 |
|
|
|
|
Eigið fé og skuldir |
|
|
Eigið fé |
118.699 |
|
Skuldbindingar |
47.276 |
|
Langtímaskuldir |
1.178.236 |
|
Skammtímaskuldir |
314.574 |
|
Eigið fé og skuldir samtals |
1.658.785 |
Allir tóku til máls.
Eftirfarandi bókun var samþykkt samhljóða:
„Það er ljóst að rekstrarafgangur bæjarins upp á 107 milljónir króna skapast einungis vegna niðurfærslu á erlendum lánum upp á 206 milljónir króna. Þannig hefði verið um 100 millj. króna tap á rekstri ef þessi endurútreikningur hefði ekki komið til. Skýringarnar er að stærstum hluta að finna í vaxtagjöldum upp á rúmar 160 millj. króna. Almennt hefur ítrasta aðhalds verið gætt og ekki hefur verið farið í neinar framkvæmdir nema mjög smávægilegar og einungis þær sem aðkallandi voru. Það blasir því við að það rekstrarumhverfi sem sveitarfélaginu er skapað er óviðunandi. Verðbólgu og síhækkandi kostnaði verður ekki velt yfir á íbúa Grundarfjarðar í ríkara mæli en gert hefur verið. Brýnt er að reglur um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga verði endurskoðaðar þannig að hann standi raunverulega undir nafni.“
Ársreikningar Grundarfjarðarbæjar, samstæðu, sjóða og stofnana samþykktir samhljóða og undirritaðir.
4. Kynning samanburðar á helstu niðurstöðum ársreikninga sveitarfélaga á Snæfellsnesi.
Jónas Gestur kynnti samanburð á uppgjöri sveitarfélaga á Snæfellsnesi og svaraði fyrirspurnum.
5. Íbúaþing/Íbúafundur.
Lagt fram minnisblað til kynningar. Íbúaþingi var frestað til haustsins en íbúafundur verður haldinn 15. maí nk.
6. Staða húsnæðismála.
Mikill skortur er á íbúðahúsnæði til leigu á meðan húsnæði í eigu Íbúðalánasjóðs stendur autt. Bæjarstjóra falið að senda erindi til stjórnar Íbúðalánasjóðs.
Til máls tóku: SKH, RG, BSP
Samþykkt samhljóða.
7. Laun í vinnuskóla sumarið 2012.
Lögð fram tillaga að launum í vinnuskóla sumarið 2012.
Til máls tóku: SKH, SRS og RG.
Samþykkt samhljóða.
8. Kjör varamanna í menningar- og tómstundanefnd.
Lagt til að í stað Sædísar Öldu Karlsdóttur og Sölva Óskarssonar verði kjörnir varamenn þeir Þorgrímur Kolbeinsson og Karl Jóhann Jóhannsson.
Samþykkt samhljóða.
9. Fundarboð, námskeið, boð um þjónustu og umsóknir um styrki:
9.1 Aðalfundur Snæfrosts hf., 24.05.2012.
9.2 Fundur um málefni ungmenna á Snæfellsnesi, 22.05.2012.
10. Annað efni til kynningar:
10.1 Beiðni um umsögn vegna umsóknar um að auka við gistirými Farfuglaheimilis Grundarfjarðar að Sólvöllum 13 ásamt svari.
10.2 Beiðni um umsögn vegna umsóknar um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Hægt og hljótt ehf. (Kaffi 59) ásamt svari.
10.3 Frjálsíþróttaráð UMFG, ársskýrsla 2011.
10.4 Frjálsar íþróttir hjá UMFG 2012.
10.5 Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, ársreikningur 2011.
10.6 Ársskýrsla og ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2011.
10.7 Samstarfssamningur um Heilbrigðiseftirlit Vesturlands.
10.8 Þjónustusvæði Vesturlands bs., ársskýrsla 2011.
10.9 Reglur um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra.
10.10 Lánasjóður sveitarfélaga ohf., ársreikningur 2011.
10.11 Erindi frá aðalfundi Búnaðarsamtaka Vesturlands varðandi minka- og refaveiði.
11. Minnispunktar bæjarstjóra.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 19:30.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir
Ásthildur E. Erlingsdóttir
Eyþór Garðarsson
Gísli Ólafsson
Rósa Guðmundsdóttir
Þórður Á. Magnússon
Þórey Jónsdóttir
Björn Steinar Pálmason
Sigurlaug R. Sævarsdóttir
|