Prentað fimmtudaginn 20. júní kl. 10:24 af www.grundarfjordur.is

Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Simi: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is

Ferðaþjónusta í Grundarfirði

 

Náttúran, mannlífið og sagan laða innlenda og erlenda ferðamenn til Grundarfjarðar. Fyrir þá sem lifa við ys og þys stórborgar eru ró og fegurð náttúrunnar forréttinndi.

 

 

Fólk sem kynnist náttúru Grundarfjarðar og blandar sér í samfélag staðarins fagnar þeirri algjöru hvíld sem býðst á þessum friðsæla stað. Að geta á örskömmum tíma orðið sem einn íbúa bæjarins er kostur sem fólk frá fáskiptu borgarsamfélagi kann að meta og margir nýta sér.

 

En ró og friður er ekki það eina sem Grundarfjörður hefur upp á að bjóða. Hér hefur ferðaþjónusta verið að eflast á undanförnum árum og því hefur þjónusta styrkst og hefðbundnum afþreyingarmöguleikum fjölgað.

  

Í Grundarfirði og í nágrenninu eru tvö veitingahús, hótel, farfuglaheimili, þrjú gistiheimili, þrjú tjaldsvæði, sumarhús, sundlaug og síðast en ekki síst Sögumiðstöðin sem er í senn safn, ljósmyndasetur, kaffihús og upplýsingamiðstöð.