Snæfellingarnir Sylvía Rún Guðnýjardóttir (söngur),  Lárus Ástmar Hannesson (söngur) og Hólmgeir Þórsteinsson (píano) halda þrenna jólatónleika á Snæfellsnesi í desember. 

Tónleikarnir standa yfir í um eina klukkustund.  Flest laganna sem flutt verða eru sígild hátíðar jólalög.  Tónleikarnir verða sem hér segir:

Ólafsvíkurkirkju föstudaginn 16. desember kl. 18:00

Grundarfjarðarkirkju sunnudaginn 18. desember  kl. 18:00

Gömlu kirkjunni í Stykkishólmi mánudaginn 19. desember kl. 20:00

Aðgangseyrir er kr. 2000