Nú siglum við inn í haustmánuðina, eftir harðar, fróðlegar, bjartar og áhrifaríkar fyrri árstíðir. Það húmar senn að kveldi og með hverjum deginum verður meira rökkur á kvöldin. Kertaljósin ylja okkur í myrkrinu og við hlökkum til komandi tíma.

 

Menningarhátíð Grundarfjarðar, Rökkurdagar 2021, verður haldin vikuna 25. - 31. október nk.