218. fundur 21. júní 2018 kl. 16:30 - 18:12 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Hinrik Konráðsson (HK)
  • Heiður Björk Fossberg Óladóttir (HBÓ)
  • Sævör Þorvarðardóttir (SÞ)
  • Rósa Guðmundsdóttir (RG)
  • Vignir Smári Maríasson (VSM)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Þorsteinn Steinsson (ÞS) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Rósa Guðmundsdóttir, starfsaldursforseti bæjarstjórnar, kvað saman fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrði honum í upphafi. Hún bauð fundarmenn velkomna og þá sérstaklega Heiði Björk Fossberg Óladóttur og Bjarna Sigurbjörnsson, sem sátu bæjarstjórnarfund í fyrsta sinn.

Bæjarstjórn minnist gengins Grundfirðings:
Ásdís Valdmarsdóttir, fædd 9. september 1933, dáin 7. júní 2018.

Fundarmenn risu úr sætum.

Lagt til að taka á dagskrá með afbrigðum eftirfarandi lið:
19. Umboð bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

1.Kjörstjórn, skýrsla

Málsnúmer 1806009Vakta málsnúmer

Lögð var fram skýrsla kjörstjórnar Grundarfjarðarbæjar um sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí sl. Á kjörskrá voru samtals 626 og af þeim greiddu atkvæði 481 eða 76,84%.

D-listi Sjálfstæðisfélags Grundarfjarðar og óháðra hlaut 260 atkvæði sem er 56,15% og fjóra fulltrúa í bæjarstjórn.

L-listi Bæjarmálafélagsins Samstöðu hlaut 203 atkvæði sem er 43,85% og þrjá fulltrúa í bæjarstjórn.

Auðir seðlar voru 16 og ógildir 2.

Eftirtaldir voru kjörnir í bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar kjörtímabilið 2018-2022:

Aðalmenn:

Af D-lista:
Jósef Ó. Kjartansson
Heiður Björk Fossberg Óladóttir
Unnur Þóra Sigurðardóttir
Rósa Guðmundsdóttir

Af L-lista:
Hinrik Konráðsson
Sævör Þorvarðardóttir
Garðar Svansson

Varamenn:

Af D-lista:
Bjarni Sigurbjörnsson
Eygló Bára Jónsdóttir
Bjarni Georg Einarsson
Runólfur J. Kristjánsson

Af L-lista:
Berghildur Pálmadóttir
Vignir Smári Maríasson
Signý Gunnarsdóttir

2.Kosning forseta og varaforseta til eins árs

Málsnúmer 1806011Vakta málsnúmer

Forseti bæjarstjórnar var kosinn Jósef Ó. Kjartansson sem sjö samhljóða atkvæðum.

Varaforseti var kosinn Hinrik Konráðsson með sjö samhljóða atkvæðum.

Jósef Ó. Kjartansson, nýkjörinn forseti bæjarstjórnar, tók við fundarstjórn.

3.Kosning bæjarráðs, aðal- og varamenn

Málsnúmer 1806012Vakta málsnúmer

Kosin voru í bæjarráð samhljóða til eins árs:

Aðalmenn:
D - Rósa Guðmundsdóttir
L - Hinrik Konráðsson
D - Heiður Björk Fossberg Óladóttir

Varamenn:
D - Unnur Þóra Sigurðardóttir
L - Sævör Þorvarðardóttir
D - Jósef Ó. Kjartansson

4.Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs

Málsnúmer 1806013Vakta málsnúmer

Fram fór kosning formanns og varaformanns bæjarráðs í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar.

Formaður bæjarráðs var kosinn samhljóða með sjö atkvæðum Rósa Guðmundsdóttir.

Varaformaður bæjarráðs var kosinn samhljóða með sjö atkvæðum Hinrik Konráðsson.

5.Kosning í nefndir skv. B lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 1806014Vakta málsnúmer

Kosið var samhljóða í eftirtaldar nefndir til fjögurra ára:

1. Kjörstjórn
Aðalmenn:
Mjöll Guðjónsdóttir
Árni Halldórsson
Þórunn Kristinsdóttir

Varamenn:
Salbjörg Nóadóttir
Guðlaug Erla Pétursdóttir
Einar Þór Jóhannsson

2. Skipulags- og umhverfisnefnd
Aðalmenn:
D - Unnur Þóra Sigurðardóttir
L - Vignir Smári Maríasson
D - Bjarni Sigurbjörnsson
L - Helena María Stolzenwald Jónsdóttir
D - Runólfur J. Kristjánsson

Varamenn:
D - Arnar Kristjánsson
L - Signý Gunnarsdóttir
D - Lísa Ásgeirsdóttir
L - Sævör Þorvarðardóttir
D - Þorkell Máni Þorkelsson

3. Skólanefnd
Aðalmenn:
D - Sigríður G. Arnardóttir
L - Garðar Svansson
D - Ragnar Smári Guðmundsson
L - Ásthildur Erlingsdóttir
D - Valdís Ásgeirsdóttir

Varamenn:
D - Hólmfríður Hildimundardóttir
L - Vignir Smári Maríasson
D - Thor Kolbeinsson
L - Sólrún Guðjónsdóttir
D - Jón Frímann Eiríksson

Áheyrnarfulltrúar í skólanefnd:
Vegna málefna leikskólans: Leikskólastjóri, fulltrúi starfsfólks og fulltrúi foreldra.
Vegna málefna grunnskólans: Skólastjóri, fulltrúi kennara og fulltrúi foreldra.
Vegna málefna tónlistarskólans: Skólastjóri.

4. Menningarnefnd
Aðalmenn:
D - Unnur Birna Þórhallsdóttir
L - Sigurrós Sandra Bergvinsdóttir
D - Eygló Bára Jónsdóttir
L - Sigurborg Knarran Ólafsdóttir
D - Tómas Logi Hallgrímsson

Varamenn:
D - Heiður Björk Fossberg Óladóttir
L - Loftur Árni Björgvinsson
D - Tryggvi Hafsteinsson
L - Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir
D - Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir

5. Íþrótta- og æskulýðsnefnd
Aðalmenn:
D - Bjarni Georg Einarsson
L - Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir
D - Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir

Varamenn:
D - Halla Karen Gunnarsdóttir
L - Signý Gunnarsdóttir
D - Hjálmar Gunnarsson

6. Hafnarstjórn Grundarfjarðarhafnar
Aðalmenn:
D - Bæjarstjóri, nú Þorsteinn Steinsson
L - Sólrún Guðjónsdóttir
D - Runólfur Guðmundsson

Varamenn:
D - Arnar Kristjánsson
L - Hinrik Konráðsson
D - Heiður Björk Fossberg Óladóttir

7. Öldungaráð
Afgreiðslu frestað til næsta fundar bæjarstjórnar.

8. Ungmennaráð
Afgreiðslu frestað til næsta fundar bæjarstjórnar.

6.Kosning formanns og varaformanns hafnarstjórnar

Málsnúmer 1806015Vakta málsnúmer

Fram fór kosning formanns og varaformanns hafnarstjórnar í samræmi við 3. mgr. 2. gr. hafnarreglugerðar fyrir Grundarfjarðarhöfn.

Formaður hafnarstjórnar var kosinn bæjarstjóri, nú Þorsteinn Steinsson.

Varaformaður var kosinn Sólrún Guðjónsdóttir.

Samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

7.Kosning í nefndir og stjórnir skv. C. lið 47. gr. samþykkta um stjórn Grundarfjarðarbæjar.

Málsnúmer 1806016Vakta málsnúmer

Kosið var samhljóða í eftirtaldar nefndir, stjórnir og ráð:

1. Almannavarnanefnd

Samkvæmt samkomulagi um skipan sameiginlegrar almannavarnanefndar og aðgerðarstjórnar sveitarfélaganna á Vesturlandi og lögreglustjórans á Vesturlandi er bæjarstjóri aðalmaður í nefndinni.

Varamaður: Jósef Ó. Kjartansson.

2. Stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Grundarfjarðarbær tilnefnir eftirtalda sem aðalmann og varamann í stjórn byggðasamlags um félags- og skólaþjónustu Snæfellinga frá og með næsta aukafundi i byggðasamlaginu.

Aðalmaður: Bæjarstjóri, nú Þorsteinn Steinsson

Varamaður: Jósef Ó. Kjartansson

3. Félagsmálanefnd Snæfellinga

Aðalmaður: Berghildur Pálmadóttir

Varamaður: Eygló Bára Jónsdóttir

4. Heilbrigðisnefnd Vesturlands

Skipuð sameiginlega af sveitarfélögum á Vesturlandi.

5. Breiðafjarðarnefnd

Fulltrúi tilnefndur sameiginlega af sveitarfélögum sem liggja að Breiðafirði.

6. Skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Fulltrúi tilnefndur sameiginlega af sveitarfélögum sem aðild eiga að skólanum.

7. Stjórn Jeratúns ehf.

Grundarfjarðarbær tilnefnir eftirtalda sem aðalmann og varamann í stjórn Jeratúns ehf. frá og með næsta hluthafafundi félagsins.

Aðalmaður: Bæjarstjóri

Varamaður: Jósef Ó. Kjartansson

8. Fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

Aðalmaður: Jósef Ó. Kjartansson

Varamaður: Unnur Þóra Sigurðardóttir

9. Fulltrúar á aðalfund Byggðasamlags Snæfellinga

Fulltrúar á aðalfund Byggðasamlags Snæfellinga kjörtímabilið 2018-2022 eru allir aðalmenn í bæjarstjórn.

10. Fulltrúar á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)

Samkvæmt lögum SSV ber að kjósa fulltrúa til eins árs í senn og er kjörtímabil frá 1. júlí ár hvert.

Fyrir tímabilið 1. júlí 2018 til 30. júní 2019 voru kosin:

Aðalmenn:
D - Jósef Ó. Kjartansson
L - Hinrik Konráðsson
D - Heiður Björk Fossberg Óladóttir

Varamenn:
D - Rósa Guðmundsdóttir
L - Sævör Þorvarðardóttir
D - Unnur Þóra Sigurðardóttir

11. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands

Aðalmaður: Bæjarstjóri

Varamaður: Jósef Ó. Kjartansson

8.Kosning í eigendaráð Svæðisgarðs Snæfellsness

Málsnúmer 1806017Vakta málsnúmer

Kosning í eigendaráð Svæðisgarðsins Snæfellsnes

Kosin voru samhljóða:

Aðalmenn:
D - Jósef Ó. Kjartansson
L - Hinrik Konráðsson

Varamenn:
D - Heiður Björk Fossberg Óladóttir
L - Sævör Þorvarðardóttir

9.Fundartími bæjarstjórnar

Málsnúmer 1806020Vakta málsnúmer

Forseti lagði fram tillögu um fundartíma bæjarstjórnar í samræmi við ákvæði 8. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar.

Fundir verði að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar annan fimmtudag í mánuði, kl. 16:30.

Samþykkt samhljóða.

10.Fundartími nefnda

Málsnúmer 1806019Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn felur fastanefndum sveitarfélagsins að setja sér starfsáætlun og markmið. Jafnframt eru nefndirnar hvattar til þess að halda fundi reglulega á fyrirfram ákveðnum tímum. Skipulags- og umhverfisnefnd og skólanefnd fundi einu sinni í mánuði að jafnaði. Íþrótta- og æskulýðsnefnd og menningarnefnd haldi fundi á 6-8 vikna fresti að jafnaði.

Samþykkt samhljóða.

11.Starf bæjarstjóra

Málsnúmer 1806018Vakta málsnúmer

Vilji er til þess að ráða bæjarstjóra sem hefur sterk tengsl við sveitarfélagið. Með vísan til 54. gr. sveitarstjórnarlaga leggja bæjarfulltrúar til að Björg Ágústsdóttir verði ráðin í starf bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar.

Björg er Grundfirðingur, lögfræðingur að mennt, með meistaragráðu í verkefnastjórnun, MPM og diploma í opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Björg var bæjarstjóri í Grundarfirði á árunum 1995-2006. Björg hefur frá árinu 2006 starfað hjá ráðgjafafyrirtækinu Alta með aðsetur í Grundarfirði. Hún hefur auk þess kennt stefnumótun o.fl. á styttri og lengri námskeiðum. Björg hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum samhliða störfum sínum á vettvangi sveitarstjórnarmála og nú síðari árin m.a. í íþróttastarfi og í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Bæjarstjórn samþykkir að ráða Björgu Ágústsdóttur sem bæjarstjóra
fyrir kjörtímabilið 2018-2022. Forseta bæjarstjórnar falið að ganga frá ráðningarsamningi við Björgu. Samningurinn verði lagður fyrir bæjarstjórn/bæjarráð þegar hann liggur fyrir.

Gert er ráð fyrir að nýr bæjarstjóri hefji störf í byrjun ágúst nk. Núverandi bæjarstjóri mun gegna starfi bæjarstjóra fram að þeim tíma.

Samþykkt samhljóða.

12.Starf skipulags- og byggingafulltrúa

Málsnúmer 1804039Vakta málsnúmer

Starf skipulags- og byggingafulltrúa hefur nú verið auglýst í tvígang án þess að umsóknir hafi borist í starfið.

Til máls tóku JÓK, HK, ÞS, RG og SÞ.

Lagt til að bæjarráði, í samstarfi við forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra, verði veitt umboð til að leita annarra leiða til þess að tryggja starfsemi skipulags- og byggingafulltrúaembættisins. Í því felst einkum að leita að starfsmanni með tímabundna ráðningu í huga, en aðrar leiðir gætu einnig komið til greina.

Samþykkt samhljóða.

13.Starf menningar- og markaðsfulltrúa

Málsnúmer 1805008Vakta málsnúmer

Starf menningar- og markaðsfulltrúa var auglýst laust til umsóknar 25. maí sl. Átta umsóknir bárust um starfið, en umsóknarfrestur rann út 10. júní sl.

Ný bæjarstjórn telur rétt að skoða betur starfslýsingu menningar- og markaðsfulltrúa og áherslur á verkefni sem hafa verið eða ættu að vera í verkahring menningar- og markaðsfulltrúa, áður en gengið verður frá ráðningu.

Bæjarstjórn frestar ráðningu menningar- og markaðsfulltrúa um óákveðinn tíma og felur bæjarráði og bæjarstjóra í samvinnu við menningarnefnd að skoða hvort ástæða sé til að gera áherslubreytingar á starfinu. Bæjarráð geri tillögu þar að lútandi til bæjarstjórnar. Bæjarráð og bæjarstjóri hafa umboð til að koma verkefnum menningar- og markaðsfulltrúa, sem sinna þarf á næstunni, fyrir með öðrum hætti, tímabundið. Þeim er jafnframt veitt umboð til að ákveða hvernig staðið verði að afgreiðslu umsókna sem borist hafa og tilkynningu til umsækjanda, sem verði tilkynnt um þessa afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

14.Opið bókhald

Málsnúmer 1806021Vakta málsnúmer

Mörg bæjarfélög hafa opnað bókhald sitt með birtingu tölulegra upplýsinga á gagnsærri hátt en áður. Markmiðið er að auka aðgengi bæjarbúa að fjárhagsupplýsingum og skýra út á einfaldan og aðgengilegan hátt hvernig fjármunum bæjarins er ráðstafað. Það er nokkuð misjafnt hversu langt er gengið í því og hvernig framsetningu er háttað. Bæjarstjórn stefnir að því að stíga skref í átt til opins bókhalds strax á næsta ári.

Til máls tóku JÓK og HK.

Bæjarstjóra og skrifstofustjóra falið að safna upplýsingum um framkvæmd opins bókhalds og kynna fyrir bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

15.Umhverfisrölt

Málsnúmer 1806022Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn leggur áherslu á fegrun, hreinsun og góða umgengni í bænum. Ásýnd hins byggða umhverfis og sveitanna okkar er dýrmæt og mikilvægt að snyrtimennska og virðing við náttúruna sé höfð að leiðarljósi. Vilji er til að skoða hvar bærinn getur gert enn betur, hvetja bæjarbúa og mynda samstöðu um góða umgengni.

Til máls tóku JÓK og RG.

Komið verði á umhverfisrölti strax í júlí, þar sem bæjarfulltrúar og fulltrúar skipulags- og umhverfisnefndar, sem og starfsmenn bæjarins eftir atvikum, bjóða íbúum í göngu, þar sem skoðuð verði afmörkuð svæði bæjarins og rætt um umhverfismál og tækifæri til fegrunar og hreinsunar þeirra. Röltið verði auglýst og íbúar hvattir til að taka þátt. Byrjað verði á þéttbýlinu. Hvatning og möguleg verðlaunaveiting til íbúa fyrir snyrtimennsku verði útfærð og sé í höndum skipulags- og umhverfisnefndar.

Samþykkt samhljóða.

16.Menningarnefnd - 16

Málsnúmer 1806004FVakta málsnúmer

  • 16.1 1804014 Sögumiðstöðin
    Undanfarna mánuði hefur menningarnefnd setið fundi ásamt rekstraraðilum Kaffi Emils sem leigja aðstöðu í Sögumiðstöðinni. Viðræður við rekstraraðila hafa gengið illa þar sem samskiptin hafa ekki verið sem skyldi. Samningur við rekstraraðilann, Svansskála, er útrunninn en ekki hefur gengið að semja að nýju þar sem rekstraraðili hefur ekki svarað samningstilboði menningarnefndar innan þess frests sem gefinn var upp, þrátt fyrir ítrekanir. Menningarnefnd - 16 Menningarnefnd leggur til við bæjarstjórn að ekki verði endurnýjaður samningur við Svansskála og rekstraraðilum gefinn frestur til að skila af sér húsnæðinu. Bókun fundar Til máls tóku JÓK, RG, ÞS, BS og HK.

    Bæjarstjórn vísar málinu til frekari úrvinnslu í bæjarráði.

    Samþykkt samhljóða.
  • 16.2 1805036 17. júní 2018
    Farið yfir dagskrá hátíðarhaldanna á 17. júní og verkaskiptingu vegna þeirra. Menningarnefnd - 16 Samþykkt samhljóða

17.Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga - Fundargerð 95. fundar stjórnar

Málsnúmer 1806024Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 95. stjórnarfundar Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga frá 11. júní sl.

Til máls tóku JÓK og ÞS.

18.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 1505019Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína.

19.Umboð bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar

Málsnúmer 1806027Vakta málsnúmer

Forseti bæjarstjórnar lagði fram svohljóðandi tillögu:

"Bæjarstjórn samþykkir að fella niður bæjarstjórnarfundi í júlí og fram í miðjan ágúst nk. skv. heimild í 7. gr. samþykkta um stjórn og fundarsköp Grundarfjarðarbæjar. Næsti fundur bæjarstjórnar verður 16. ágúst 2018. Í sumarleyfi bæjarstjórnar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella skv. heimild í 48. gr. samþykktarinnar."

Samþykkt samhljóða.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 18:12.